Æskan

Volume

Æskan - 01.12.1989, Page 35

Æskan - 01.12.1989, Page 35
Skyndilega lægði snjófjúkið og vind- urinn hvarf. Eg horfði á það með eigin augum hvemig ein stjarnan á fætur annarri birtist á himinhvolfinu, eins og ósýnileg mjúk hönd færi um jörðina og himininn, svæfði vindinn og kveikti á stjömunum eins og þær væru kerti í stórri kertastiku. Þá hvarf sýnin jafnskyndilega og hún hafði komið og meira að segja rjúpan, sem hafði fyrst verið á vegin- um, var þar ekki lengur. Afi kom út úr bílnum. A móti okkur kom hvítur hest- ur töltandi eftir veginum. Pað á ef til vill ekki við að segja um útigangshross að þau séu undurfögur en það var ekk- ert annað hægt að segja um þennan hvíta hest sem allt í einu stóð fyrir framan okkur. Hulduhestur var hann. Hvaðan kom hann, hvert fór hann? Það veit ég ekki. Hann bara stóð þama andartak eins og uppljómaður af skæru ljósi, hestur úr snjó og vindi. Eg deplaði augunum og hann var farinn á eins dularfullan hátt og hann kom. Hann var ennþá óraunverulegri en rjúpnahuldudrottningin en samt vissi ég að hann var aðeins útigangshross, eitt og yfirgefið á fjallvegi á jólanótt. Við komumst aldrei til kirkjunnar. Afi ákvað að láta fyrir berast á þessum stað í bílnum til morguns. Við fórum aftur inn í bílinn og biðum fram undir morg- un. Þá kom jeppi akandi eftir veginum og afi ók hægt á eftir honum heim að Felli. Við töluðum aldrei um þessa nótt og þessa sýn okkar á milli. Eg veit ekki hvers vegna en ég hef alltaf verið viss um að við hefðum orðið fyrir slysi ef við hefðum ekki numið staðar þarna og látið fyrir berast. Tveir eru eins Hér sérðu níu glaðlega jólasveina. Tveir þeirra líta alveg eins út. Getur þú sagt okkur hverjir það eru? - Prenn verðlaun. Felumynd Jólasveinamir eru að ganga fró jólagjöjum til sendingar til bama um víða veröld. Peir halda að þeir séu að leggja síðustu hönd á verkið. Raunar hafa þeir gleymt að búa um sjö ágætar jólagjafir. Finnur þú þær? Prír þeirra sem finna fimm eða fleiri gjafir á felum\;ndinni hljóta verðlaun. - Gættu þess að rita póstfang okkar: Æskan, pósthólf 523, 121 Reykjavík. Gleymdu ekki að geta um aldur. Æskan 35

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.