Æskan

Árgangur

Æskan - 01.12.1989, Síða 40

Æskan - 01.12.1989, Síða 40
brauði og smjöri og hnausþykkur hrís- gijónagrautur með sykri, kanel og smjöri á eftir. Síðar um kvöldið var svo drukkið sætt kaffi. Allir fengu jólakerti, oftast fleiri en eitt. Á helgri hátíð Sjálf jólahelgin hófst með því að les- inn var jólalesturinn og sálmur sung- inn, bæði fyrir og eftir. Síðan var sest að snæðingi. - Að máltíðinni lokinni bjuggust þeir til aftansöngs á kirkju- staðnum sem þangað ætluðu. Hinir sátu heima og hvíldu sig eftir erfiði dagsins, lásu í guðsorðabókum, raul- uðu eftirlætissálmana sína upp úr sálmabókinni, töluðu hljóðlega saman og sýndu hver öðrum jólagjafimar. Börnin kveiktu á kertunum sínum, horfðu inn í ljósið og sáu guðs dýrð í litla loganum. Til forna var aftansöngur haldinn á jólanótt en talið er að hann hafi lagst niður skömmu fyrir miðja átjándu öld. - Þegar ég var bam voru jólanæturtíð- ir aftur upp teknar. Mun ég hafa verið um tíu ára gömul þegar fyrsti aftan- söngur var haldinn á ný í Þverárkirkju í Laxárdal. - Það var talað um að nú ætti að vera aftansöngur og allir fóru til kirkju. Aldrei gleymi ég þeim dýrðar- ljóma sem mér fannst vera yfir þessari guðsþjónustu. Allt var ljósum prýtt og óvenju mikið sungið. Presturinn var ungur og ljúfmannlegur og hafði fagra rödd. Ræðan var örstutt en söngurinn margbreyttari en venja var til og allt með einhverjum unaðslegum hátíða- blæ í fallegu kirkjunni hans afa á Þverá. - Aftansöngur mun nú tíðkast um allt land og vill fólkið áreiðanlega ekki af honum sjá í annað sinn. Aldrei var spilað á spil né aðrar skemmtanir um hönd hafðar á jóla- nóttina. Þótti það hin mesta ósvinna ef út af þessu var brugðið. Jólanóttin var hrein og stillt eins og stjörnur himins- ins. Á hana mátti ekki falla hinn minnsti skuggi. Hún var vin í eyði- mörku vetrarmyrkurs og kulda - skjól hins minnsta smælingja jafnt sem hins voldugasta höfðinga - háheilög stund sem lét drauminn um guðsríki á jörðu rætast ár hvert - í nokkrar klukku- stundir. Á hverjum bæ var ljós látið loga yfir sofandi fólkinu þessa einu nótt. Jóla- dagurinn hófst með því að húsfreyjan og eldhússtúlkan færðu fólkinu kaffi og jólabakstur í rúmið. Síðan var klæðst við jólaljós. Karlmenn fóru til gegninga og konur til mjalta. Er því var lokið bjuggust menn á ný í jólaskartið. Sumir fóru til kirkju, aðrir sátu heima og hlýddu húslestri. Þegar kirkjufólkið var komið heim aftur var miðdagsverður borinn inn. Þótti börnum og unglingum ekki lítið til koma að mega færa fólkinu hrokaða diskana með laufabrauðs-hlaðanum ofan á. Svo var borðaður rauðgrautur með rjóma eða „vínsúpa" á eftir. Vín- súpa var venjuleg sætsúpa með sagó- grjónum, sveskjum og rúsínum og saft út í. Var hún aðeins höfð á hátíðum og í veislum. Eftir miðdegismatinn var oftast ró- legt. Karlmenn fengu sér blund í rúmi sínu, kvenfólkið skrafaði saman eða las í sálmabókum, bömin léku sér hljóð- lega. Þar sem stutt var á milli bæja brugðu menn sér stundum í heimsókn en töfðu sjaldan lengi. Jóladagurinn var of heilagur til hversdagslegra skemmtana. En á annan í jólum var glaumur og gleði, spilað á spil, dansað, þar sem stofur voru - og leikið á har- moníku og fiðlu - hópast saman á bæjunum og vakað fram á nótt. Jólin voru á enda það árið. Hversdagsannir biðu allra. Og það var svo hressandi að fá sér einn fjörugan dans og syngja eitt lag áður en virkir dagar komu með starf og strit á ný. Viku eftir jólin kom svo áramótahá- tíðin. En ekki var jafnmikill helgiblær yfir henni sem jólunum. Þó var ára- mótastundin bæði heilög og háalvar- leg. Þá söng allt fólkið „Nú árið er liðið í aldanna skaut“. Á eftir tókust allir í hendur, þökkuðu hver öðrum fyrir gamla árið og óskuðu gleðilegs nýárs. Á gamlárskvöld og nýársdag voru messur og matarveitingar svipaðar og um jólin. - Álfadansar og brennur voru stundum á gamlárskvöld en þó oftar á þrettándanum. Sá dagur var lokadagur jólahelginnar í fornum sið og þó að ekki væru lengur nema þrír fyrstu jóladagarnir haldnir helgir þá var þrettándans minnst með skemmtisam- komum, brennum og álfadansi. En ekki verður því nánar lýst í þessari stuttu grein. „Jólin eru þrotin - og lifið þið vel!“ (Hulda hét réttu nafni Unnur Benedikts- dóttir Bjarklind. Hún var fædd 6. ágúst 1881 á Auðnum í Laxárdal. Fyrsta bók hennar, Kvæði, kom út 1909 en eftir það sendi hún frá sér bæði kvæðasöfn og sög- ur. Eitt af þekktustu kvæðum Huldu er, Hver á sér fegra föðurland?, ort í tilefni af stofnun lýðveldisins árið 1944. Hún lést 1946. - Grein þessi er skrifuð 1942. Hún birtist í jólablaði Æskunnar 1963) 40 Æskan
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.