1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Side 11

1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Side 11
7 1. MAI Sex hundruð þús- und fímmtíu og ein króna. Björgólfur Sv.einsson þyrlaði stórum reykjarmekki út í stofuna og varð mjög ákveðinn á svip. „Eg gef fimmtíu krónur“, sagði hann, „ekki dugar að láta þá hrökkva upp af, þessa blessaða aumingja, — huh“. „Þakka yður svo innilega, herra Björgólfur, maður vissi það nú sosum að þér mynduð ekki bregðast, ja, það myndi þá flest bregðast, eg bara segi það“. Og Guðrún Sjonson, formaður kvenfélagsins Svangralíkn strauk vinstri hendinni niður dúnmjúka silki- svuntuna og brosti fimmtíu króna kvittunarbrosi framan í Björgólf Sveinsson. „Það verður að reyna meðan mað- ur getur“, sagði hann, og það kom á- hyggju- og vandlætingarsvipur á and- litið. „En hvað verður það lengi?“ bætti hann við, „þegar landinu er stjórnað eins og því er stjórnað, með þessa óvita við stýrið, sem ekki hika við að hefta athafnafrelsi okkar, sem höfum þó fórnað öllum okkar kröft- um fyrir atvinnulíf okkar lands“. Og Björgólfur Sveinsson stakk vindlinum grimmilega upp í vinstra munnvikið og seildist eftir p.eningaveskinu, og brot úr augnabliki hvarflaði hugurinn til bankans, þar sem hann skuldaði sexhundruðþúsund krónur, — nægi- lega mikið til þess að nota stór orð og vera mikill maður á íslandi. „Þið reynið nú að tala við þetta fólk svona um leið“, sagði hann og brosti dálítið íbyggilega. „Þakka yður fyrir, blessaður mað- urinn“, sagði Guðrún Sjonson, og það var grátklökkvi í röddinni. „Ja, mikil ósköp, það vantar sosum ekki að við reynum að tala við það, en það er Framhald á 18. síðu. Öreigahvöt. Þú orkuþétta iðjustétt, sem auðsins drottnar sviftu rétt, þó kúguð sért, þú ávallt ert það afl, sem hér er mest um vert. Þitt bæjarmál er — blóð og stál, þú berst til valda af lífi og sál, því hetjulund í heimanmund þú hlauzt á lífsins morgunstund. Tak fána í hönd og vopnin vönd og ver þinn rétt um dal og strönd. Þú landið átt og lífsins mátt, sem lét þig eygja takmark hátt. Þú sigra skalt, — færð aftur allt, sem auðvald stal — og kúgun galt. Þér fáninn rauði færir brauð og frelsi og þrek í stríðsins nauð. Þig hvetur níð, þig stælir stríð, unz stökkur fram, sem elfa í hlíð. Hvert orð sé beitt, hvert hugtak heitt, af hetjudáð skal róman þreytt. Þín liggja spor frá hungri og hor til heilladags, ef áttu þor. Með fána í hönd, þú hristir lönd, svo hrökkva Mammons þrælabönd. X. Myndin á næstu síðu: Samfylking alþýðunnar undir merkjum Alþýðusambandsins 1. maí 1935.

x

1. maí - Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.