1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Blaðsíða 15
11
1. MAÍ
Bygging Alþýðuhússins
Það var fyrir eitthvað tíu eða
tólf árum, að mig minnir, að ég
var staddur hér í Reykjavík á hátíðis-
Oddur Ólafsson
degi alþýðusamtakanna, 1. maí. Fór
þá um götur bæjarins myndarleg fylk-
ing undir forustu Alþýðuflokksins.
Var staðnæmst á opnu svæði við
Hverfisgötu, neðan Ingólfsstrætis. Þar
var leikið á lúðra, ræður fluttar og
sungið, eins og venja mun v.era við
þessháttar tækifæri. Ég veitti því at-
hygli, að þarna var byrjað að brjóta
landið, og lá grjót, sem upp hafði ver-
ið rifið, í stórum hrúgum um svæðið.
Leit helzt út fyrir, að byrjað væri á
einhverju stóru mannvirki á þessum
stað. Sagði Þórbergur Þórðarson, einn
þeirra fáu í flokknum, sem ég þekkti
að alþýðufélögin hefðu náð eignar-
haldi á þessari byggingarlóð, og hygð-
ust að reisa þarna með tímanum hús
yfir sig og starfsemi sína. Innti ég þá
eftir því, hvort alþýðusamtökin ís-
lenzku ættu hvergi höfði sínu að að
halla í höfuðstað landsins, undir eig-
in þaki. Svarið var neikvætt. Mig furð-
aði satt að segja á þessu. Mér var sem
sé vel kunnugt, að um Norðurlönd öll,
England og Þýzkaland áttu þá sam-
tök hinna vinnandi stétta mörg og
glæsileg stórhýsi, og það jafnvel sér-
stakar atvinnu- og iðngreinar innan
stéttasamtakanna.
Síðar, eftir að ég hafði kynnzt þess-
um málum nánar, hefi ég fengið
nokkra skýringu á þessu fyrirbrigði,
sem mér kom þá svo óvænt.
Orsökin virðist vera sú, að örðug-
l.eikar þeir, sem alþýðusamtökin hér
á landi hafa haft við að stríða, hafi
jafnvel verið meiri, hlutfallslega,
fyrstu árin eftir að samtökin hófust,
heldur en í nágrannalöndunum. En
hvað sem um þetta kann að vera, varð
að bíða þess mörg ár, að takast mætti
að koma upp sæmilegu húsi fyrir
starfsemi alþýðufélaganna, og því
verki er ekki lokið til fulls enn þann
dag í dag. •— Þótt vígsla hússins geti
nú farið fram, þá er þó margt hand-
takið eftir enn þá, enda eru ekki liðn-
ir nema ellefu mánuðir síðan byrjað
var á verkinu.
Það er ekki ætlun mín að fara að
rekja hér þær viðhorfsbreytingar, sem
með árunum hafa orðið um húsbygg-
ingarmál alþýðusamtakanna hér í
Reykjavík. Þeirri hlið málsins eru
margir kunnari en ég. Vel má láta
þess getið, að með þróun alþýðu-
hreyfingarinnar, að með aukinni tölu