1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Side 22
1. MAÍ
18
Alþýðuhreyfingin og
menntamennirnir.
Um öll lönd hefir alþýðuhreyfing-
unni bætzt stuðningur úr hópi mennta
manna. Þetta er næsta eðlilegt. Þeir,
sem hafa aðstöðu til þess að afla sér
menntunar, og um leið geta losað sig
við marga hleypidóma og úrelt sjón-
armið, hljóta að fá augun opin fyrir
rangsleitni þess þjóðfélags, þar sem
tiltölulega fáir menn, með umráðum
yfir fjármagni, halda fjöldanum í
viðj.um skorts og allsleysis, þar sem
hóflaus eyðsla og allsnægtir annars-
vegar og skortur brýnustu nauðsynja
hinsvegar draga þrótt og þrek úr
mönnum, þar sem forréttindi fárra
manna er fjötur um fót alls almenn-
ings. Þeir menn, sem sérstaklega á
ungum aldri, eiga þess kost við góðar
menntastofnanir, að fá fulla vitneskju
um ástand þjóðfélagsins, þróun þess
og ummyndun og þau öfl, er á-
standið skapa, geta vart hjá því kom-
izt, að sjá og skilja, að það er þörf
gagngerðra breytinga á þjóðfélags-
háttunum, og að alþýðan á vissulega
fulla heimtingu á því, að hlutur henn-
ar í þjóðfélagsmálefnum sé réttur. •—
En þegar að menntunin hefir fært
mönnum heim sanninn um þessar
staðreyndir, hljóta allir þeir, sem
unna réttlætinu, að athuga, hvert
stefna skuli til þess að ráða bót á
meinsemdunum. Og þá verður það
jafnaðarstefnan, sem ber uppi al-
þýðuhreyfinguna í öllum löndum, er
bendir slíkum mönnum á leiðina.
Það er haft eftir einum úr hópi
þeirra fyrstu manna íslenzkra, er
lagði stund á hagfræðinám, að það
væri ekki unnt að iðka þá fræðigrein
án þess að verða jafnaðarmaður. 1
þessum opinskáu ummælum felast
djúp sannindi. Þeir, sem leggja stund
á að kynnast nákvæmlega og með
fullkominni fræðslu, reglum og lög-
málum athafna- og fjármálalífsins,
komast ekki fram hjá þeim sannind-
um, að jafnaðarstefnan bendir með
skýrum og ótvíræðum rökum á úr-
lausnir vandamálanna í félagsmál-
efnum mannanna.
Engir ættu að hafa betri aðstöðu
til þess en þeir, sem eru sannir
menntamenn, að skilja sannindi jafn-
aðarstefnunnar og nauðsyn sterkrar
og vaxandi alþýðuhreyfingar. Og því
verður ekki neitað, að íslenzka al-
þýðuhreyfingin hafi, einkum á síðari
árum, fengið stuðning margra mennta
manna, þó enn skorti mikið á, að sá
stuðningur sé nógu almennur. En í
fylkingu alþýðuhreyfingarinnar, eiga
menntamennirnir heima, undir rauða
fánanum eiga þeir að sigrast á órétt-
lætnu. St. J. St.
Framhald af 7. síðu.
eins og spillingin sé orðin svo mikil,
sérstaklega hjá karlmönnunum. Helzt
,eru það þó konurnar, sem taka ein-
hverjum sönsum þegar við erum að
reyna að gleðja þær, veslingana, en
það er eins og maður viti aldrei hvað
það stendur lengi nú orðið með öllum
þessum krítikisma á beztu fram-
kvæmdum þjóðarinnar". Og Guðrún
Sjonson stjankaði mæðulega um leið
og hún gekk út úr stofunni, en Björg-
ólfur Sveinsson útgerðarmaður hvarf
á bak við reykský úr krónu-vindli —
sexhundruðþúsund fimmtíu og ein
króna. a X b.