1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Qupperneq 24

1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Qupperneq 24
1. MAI 20 áttað sig á neinu, svo starði hann beint upp í loftið. „Að hverju er hann að gá?“ spurðu mennirnir í bátnum hver annan. „Að flagginu", æpti léttadrengurinn Kucki, í ákafa. Það var ekki um að villast, líkið starði á fánann. Og allt í einu um- breyttist þetta lifandi lík. Höfuðið varð allt í einu að höfði lifandi manns, varirnar herptust saman, hann sneri við og synti burt frá skip- inu. „Hann er genginn af vitinu“, grenjaði skipstjórinn úr lyftingunni. „Eigum við að láta bátinn síga?“ spurði Hannes Bull, einn af hásetun- um. En í sama bili tók undiralda sundmanninn og varpaði honum upp að skipshliðinni. Hinrik beygði sig niður, til þess að krækja klónni í hann. En þegar maðurinn skildi, að hann var í þann veginn að bjargast, tók hann mikilvæga ákvörðun. Það var auðséð á andliti hans. Hann horfði beint upp, fram hjá fánanaum, beint upp í himininn, dróg andann djúpt. Einhver yfirnáttúrlega ró og tign færðist yfir andlit hans. Kucki sagði frá því seinna, að hann mundi aldrei gleyma þessum svip. Og svo, áður en við gátum við því séð, stakk sér. Við sáum í iljar honum. Hann synti beint niður. Var þetta vitfirringur? Sjálfs- morðingi? Með svona svip! Karl langaði mest til að segja: „Látið hann vera!“, en hann sagði það ekki. Hinrik fleygði sér í sjóinn. Fötin og skórnir voru honum til trafala. Það var svei mér gott, að hann var ekki kominn í hreinu fötin! Ansvíti gat verið kalt í sjónum. Hver þremillinn varð af náunganum? „Kulm, hæ“, hrópaði einhver í bát rétt hjá. En enginn svaraði, allir stóðu hinumegin og störðu á staðinn, þar sem Hinrik hafði horfið. Þarna skaut Hinrik upp. Hann saup hveljur og blés sjó út um nef og munn. Enginn gat varist hlátri. Jú, honum hafði tekist það. Vinstri hand- legg hélt hann utan um fót, sem ekki gat verið hans eigin fótur. Karl fikaði sig niður og hjálpaði honum upp í stigann. Hinrik settist í neðsta þrepið, til þess að blása mæðinni. Hann hélt ennþá utan um fótinn. Karl tók í fót- inn og sneri manninum við, meðvit- undarlausum. Á sama augnabliki barst skerandi óp um allt skipið. Karl hafði sleppt manninum. Hann stirðnaði af skelfingu við sjónina, sem hann sá. Hinrik fleygði sér í sjóinn aftur og náði í manninn. Svo drógu þeir Karl og hann manninn upp stigann, sjór- inn lak úr fötum þeirra og hári. Á sömu stundu sveigði bátur fyrir aftur- enda skipsins, í honum voru tveir ung- ir menn í einkennisbúningi. „Kulm, hæ“, æptu mennirnir í bátnum, og var mikið niðri fyrir. En nú byrjaði skröltið í vélinni. Skipshöfnin dró manninn meðvitundarlausan inn fyrir borðstokkinn. „Hvað viljið þið?“ æpti bátsmað- urinn til mannanna í bátnum. „Nemið staðar“. „Nazistar", sagði bátsmaðurinn við Kucki. „Taktu eftir einkennisbúningn- um, drengur minn, brúnskyrtur“. En upphátt kallaði hann: „Heil Hitler“. Óðara teygðu bátsverjar upp hægri handlegg, eins og þeir væru að blessa yfir bylgjurnar og grenjuðu: „Heil Hitler!“ S'vo bárust þeir inn í straum- röstina frá „Kulm“, og urðu að taka til áranna.

x

1. maí - Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.