1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Blaðsíða 31

1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Blaðsíða 31
27 1. MAI eftir að venja ykkur við breytinguna. Já, það er ekki lognið og ládeyðan í þriðja ríkinu, manni. Hér er það bara einn, sem ræður. Engar vífilengjur, skiljið þér? — Jæja, þér megið fara. Og þú líka, litli umskiftingur". ,,Hvað heitið þér, með leyfi að spyrja?“ stundi skipstjórinn. „Viljið þér nú ekki gera svo vel að bypja yður? Annars er ekki á góðu von“. „Komdu nú, skipstjóri“, sagði Kucki ákveðinn og tók í hönd Schir- mars. „Lestin er rétt að fara“. Hann teymdi skipstjórann inn í vagninn. Hurðinni var skellt aftur, og lestin fór af stað. Schirmer tautaði: „Á dögum keis- arans voru þeir svo sem nógu hort- ugir, en þeir voru nú samt ekkert lík- ir þessum unga oflátung“. „Hann er nú sjálfsagt bara undan- tekning“, sagði Kucki. „Vitanlega, drengur minn! En dóni er nú einu sinni alltaf dóni. Á morg- un fer eg til lögreglunnar og kæri hann. Svona náungi getur alveg eyði- lagt þjóðernishreyfinguna“. Morguninn eftir fór Schirmer til lög- reglunnar. Innan við grindurnar í varðstofunni sat stormsveitarforingi. Schirmer sagði frá því, sem fyrir hann hefði borið, en það leit helzt út fyrir, að maðurinn legði engan trún- að á orð hans. „En eg sá þetta sjálfur, með mín- um eigin augum“, sagði Schirmer með áherzlu. „Ef þér hafið einhverjar kærur fram að bera, verðið þér að snúa yð- ur til einhvers annars en mín“, sagði Nazistinn hryssingslega, „að minnsta kosti ef þér hafið ekki annað upp á að bjóða en ósannaðar fullyrðingar“. „En, herra minn“, sagði Schirmer. „Hvað er það, sem þér leyfið yður? Eg er gamall maður, eg hefi leyst af hendi herskyldu mína, var fjögur ár við herlínuna . . . . “ „Hvað get eg gert fyrir yður. Eg hefi nauman tíma“. „í fimmtán ár hefi eg vonað eftir þjóðlegri endurfæðing Þýzkalands, eftir nýju og glæsilegu föðurlandi“. „Já, já. Nú er það komið“. „Já, einmitt það, er það nú komið?“ i’umdi í Schirmer. „En í gær var kona slegin niður, og flokksforingi horfir á, án þess að grípa fram í. Eg er þjóð- ernissinni, og svona hlutir finríst mér svívix'ðing.“ „Þér megið vara yður á því að breiða út loginn orði’óm!“ „Gerið svo vel að hafa yður hægan á meðan eg er að tala! Viljið þér vekja þjóðernistilfinningu fólksins, eða ætlið þér að eyðileggja hana?“ Stormsveitarforinginn gapti af undr- un og gaf bendingu tveimur storm- sveitarmönnum með handleggsbox’ða aðstoðarlögreglunnar. Þeir tóku í Schirmer. Annar þeii'ra sagði glað- lega: „Komdu nú, gamli minn“. Þeir ýttu honum út að dyrunum. Þaðan lá steinstigi niður að útidyrunum. Oi'ðalaust fleygðu þeir Schirmer út fyrir. Það var eins og þeir kynnu tök- in á þessu. Fyrst datt hann á höfuð- ið á steinþrepin, svo valt hann niður allan stigann. Það var hlægileg sjón, því hann var svo stuttur og digur. Nazistarnir tveir hlógu upphátt. For- inginn kom fram til þeirx’a og reyndi að verjast því að brosa: „Þetta áttuð þið nú ekki að gera, piltar“, sagði hann. Svo fylgdust þeir að inn aftur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

1. maí - Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.