1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Page 35

1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Page 35
31 1. MAl , Verkalýðssam- Utlifið í dag. tökin og' alþýðan. Loftifc er þrungiÖ af ógnum og eldi, ófritSarblikurnar stíga hátt. Morðtólin skipa í vélanna veldi veglegast sœti, á morgni og kveldi, drápsmagnið þróast dag og nótt. Vísindin mótu^ af hervaldsins höndum, heimskunni þjóna í flestum löndum. FriÖarins drottinn er fjötraÖur böndum. Fjörtjóns má vænta úr hverri átt. Einvaldir harÖstjórar heimskingjum lyfta, úr hásæti menningu bera’ á eld, friíSarins unnendur frelsinu svipta. Fífldjarfir morÖingjar samningum rifta. LjóniÖ er klætt í lambsins feld. Leikur sór örninn aÖ bágstöddu barni. Byltir sér æska í fasismans skarni. Glæddur er hatursins eldur á arni. Sem ambátt er vorboÖans hugsjón seld. Kynþátta byltingar. Byssurnar spenna blóÖþyrstir morÖingjar, vaÖa jöríS. VeríSmætum eyíSandi, æskunni kenna eldsprengjur handleika, drepa og brenna. Fallstykkjum hlaÖa í fjallaskörÖ. Menningin riíSar á fallandi fótum. FrelsiÖ er kúgun me'Ö mannablótum. Kynkvíslir berast á banaspjótum, blótSugan hníga á jarÖarsvörÖ. ASalsteinn Halldórsson frá Litlu-Skógum. Verkalýðsstétt okkar Islendinga er ennþá ung og óþroskuð, hún á ennþá við ýmsa byrjunarörðugleika að stríða — örðugleika, sem að ýmsu leyti eru eðlilegir, þegar Jitið er á það, hvað tiltölulega er stutt síðan að þessari stétt varð það ljóst, að hún hafði sinna sérhagsmuna að gæta og sér- stakt sögulegt hlutverk að inna af hendi. Það er fyrst eftir að bæir og þorp fara að rísa upp hér á landi, að þessi stétt fer að verða óberandi í þjóðlífi okkar íslendinga. Þetta eru mennirnir, s,em finnst of þröngt um sig heima í sveitinni; þeir flytja að sjónum, ,,á mölina“, eins og það er kallað; þeir sækja gullið í greipar Ægis, þeir byggja upp bæina, kauptúnin og sjóþorpin allt í kringum strendur þessa lands. I hafinu eru auðæfin fólgin, sem veita þeim björg og brauð. Þar er þeirra framtíð. I staðinn fyrir að leita til annara heims- álfa og gjörast þar landnemar, setj- ast þessir menn að í sínu eigin föður- landi og hefja þar nýtt landnám. Fyrir orku þeirra, strit og þraut- segju byggðist land vort að nýju; þeir sóttu út á hafið og báru gullið að landi; þar varð það aftur að vinnu og skapaði afkomumöguleika fyrir nýjar stéttir manna, sem uxu upp og lifðu á verðmætum þeim, er numin voru úr skauti Ægis. Fyrir orku og vinnu þessarar stétt- ar hefir allt orðið til, sem gert hefir verið til framfara og bóta hér á landi á síðari tímum; þeir hafa lagt vegina,

x

1. maí - Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.