1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Síða 41

1. maí - Reykjavík - 01.05.1936, Síða 41
37 1. MAl af bátunum. Sumir lyftu hendinni upp undir húfuderið, hægra megin, — svo litu þeir niður á vatnsleðursskóna, sem maðurinn bar á fótunum. Þetta voru hinir markverðustu skór, í raun og veru merkileg stígvél. Slíkir skór höfðu ekki sést þar um slóðir, að undanteknum einum hollenzkum, sem þangað höfðu borizt fyrir mörg- um árum. Gvendur í ,,Neðsta“ spýtti við tönn. Hann og allt hans fólk gekk í skinn- skóm og skinnsokkum, eins og flest fólk þar um slóðir. — En þessi ná- ungi á skónum hlaut að vera útlent aðskotadýr. Gvendur gekk afsíðis og bættist í hóp nokkurra félaga sinna, sem stóðu álengdar og rjáluðu með tannstöngli við tennur sínar, en létust ekki horfa á þenna einkennilega ferðamann. En aðkomumaðurinn stóð þögull og renndi augum sínum út á sjóinn, — til hafsins. Einhver undarleiki, eitt- hvert grunsamlegt æfintýri úr fjar- lægðinni fór að sveima kringum þá, þegar hann stóð þar meðal þeirra. Það var eitthvað í fari hans, sem raskaði hugarrósemi þessara hógværu strandbúa. En Jóhannes snaraðist að þeim, einum eftir annan, og kvaðst ætla að spyrja þá, sem hér væru staddir, hvort þeir gætu hýst þennan mann, að minnsta kosti þessa nóttina; þetta væri útlendingur, sem væri að villast, hefði líklega ætlað yfir í Hraunsfjörð, — áðan hefði hann bent á fjallið hin- um megin við fjörðinn. En það var öðru nær en að nokk- ur þeirra hefði húsnæði, til þess að hýsa bláókunnugan mann. Þetta var auk þess útlendingur, — kannske með varhugaverða sjúkdóma. Þeir færðu sig gætilega frá, svo að lítið bar á, — hinir ábyrgðarmiklu heimilisfeður. Jóhannes hefði átt að vita ástæðurnar hjá þeim heima, — hvað höfðu þeir nema herbergi inn af eldhúsinu. Áttu þeir kannske að láta þennan slána sofa þar hjá konu og börnum. Sumir muldruðu afsakanir til þess næsta og skutu fram orðum um hættuna, sem gæti stafað af svona manni. Þá kvað Gvendur í „Neðsta“ upp úr og bjargaði málinu. — Það væri reynandi að hola hon- um inn í salarkynni hreppstjórans. Og Gvendur hló við. En þá funaði Jóhannes upp, og hvessti röddina: — Þið eruð helvítis ræflar upp til hópa. Það er aumt að vera upp á ykk- ar ráð kominn, sagði hann og slengdi fuglakippunni yfir öxlina. Svo gekk hann að ókunna mamunum og kippti í treyjuermi hans. — Komdu lagsi, sagði hann og benti fram kambinn. Þeir þrömmuðu báðir fram kamb- inn, en karlarnir þjöppuðust aftur saman hjá bátunum. II. Þannig atvikaðist það, að þessi út- lendingur kom undir þak foreldra minna. Jóhannes skytta bjó í litlu her- bergi uppi á lofti í húsi okkar. Hann hafði þar flest þægindi hjá rúminu sínu. Þríkveikjuð olíuvél stóð á göml- um sykurlcassa við fótagaflinn, en inni í kassanum voru flest búsáhöld- in, að undanteknum einum potti,

x

1. maí - Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 1. maí - Reykjavík
https://timarit.is/publication/396

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.