Valsblaðið - 24.12.1968, Side 8
6
VALSBLAÐIÐ
en það má með sanni segja að þeir
unglingar, sem í félagið hafa geng-
ið, eru mjög til fyrirmyndar hvað
umgengni og framkomu snertir.
Forystumenn félagsins eru sér
þess meðvitandi, að félagið hefur
stóru hlutverki að gegna í æsku-
lýðsmálum borgarinnar. Okkur er
það ljóst að ábyrgðin er mikil.
Þessvegna viljum við gefa að-
standendum kost á að kynna sér
hvers konar félagsskapur það er,
sem börn þeirra leita eftir.
Margur er smár er hann í fyrsta
sinn kemur hingað til að spyrna
bolta, ef til vill svo smár að hann
ratar ekki heim til sín eftir æf-
ingu.
Margir koma, sumir hætta, aðr-
ir halda áfram. Boltinn hefur seið-
mátt, sem margir fá ekki staðizt,
þeir bindast félaginu sterkum
böndum.
Hér myndast oft vinátta og
kunningsskapur, sem nær út fyrir
þetta svæði.
Margir minnast þess með þakk-
læti í endurminningum sínum, að
þeir skyldu hafa fengið tækifæri
til að stunda íþróttir sem ung-
lingar- I kvæði segir Guðmundur
Sigurðsson, gamall Valsfélagi og
„hirðskáld“ Vals í mörg ár:
Man ég hvað þessir melar seiddu
margan lítinn dreng til sín.
— Hér var mætt í heilum hópum
hér var fyrsta æfing mín.
— Ó, þeir fögru æskudraumar
ennþá búa í huga mér
þegar ég sem stuttur snáði
stökk og lék með knöttinn hér.
Knattspyrnufélagið Valur er
sem kunnugt er áhugamannafélag,
sem ungir piltar í K. F. U. M.
stofnuðu 1911.
Æ síðan hafa áhugasamir menn
lagt á sig mikla vinnu til að félag-
ið héldi velli, yxi og dafnaði.
Snemma var byrjað á fram-
kvæmdum.
Allt frá því félagið keypti þetta
svæði hér að Hlíðarenda hafa stór-
huga og framtakssamir menn eytt
frítíma sínum hér til að skapa
æskufólki borgarinnar aðstöðu til
íþróttaiðkana eins og bezt verður
á kosið.
Þrátt fyrir það þó að öll vinna
við framkvæmdir og stjórnar-
störf sé unnin í sjálfboðaliðsvinnu,
kostar geysi mikið fé að reka slíkt
félag sem Val.
Þess fjár, sem með þarf, ermeðal
annars aflað eftir allskonar fjár-
öflunarleiðum, svo sem happ-
drættum, hlutaveltum, auglýsing-
um o. fl. Þó slíkar fjáraflanir séu
ekki alltaf vinsælar hjá þeim sem
til er leitað, hefur fólk yfirleitt
sýnt slíku góðan skilning. Ég vona
að fólk geri sér ljóst, að þeim fjár-
munum, sem aflað er, er vel varið,
til að viðhalda þeirri aðstöðu, sem
við höfum í dag- Jafnframt verð-
um við að reyna eftir megni að
nýta þá möguleika, sem þetta
svæði okkar býður uppá; og er þó
ýmislegt ógert.
Þetta er ekki sagt til að skjóta
fólki skelk í bringu, að nú sé ein-
hver fjáröflunarherferð í aðsigi,
heldur er á þetta minnzt til að fólk
íhugi að það hlýtur að vera fjár-
frekt að hafa skapað slíka aðstöðu
og geta boðið hana hverjum sem
er. Það er ósk forráðamanna Vals
að samband þeirra við aðstandend-
ur unglinga sé sem vinsamlegast
og þeir eru ávallt til viðtals um
málefni, sem snúa að Val.
Eðlilegt er að foreldrar vilji
vita hvað börn þeirra hafast að í
tómstundum sínum, og þá er oft
spurt — hvert ætlarðu ? og þá er ef
til vill svarað: Á æfingu hjá Val.
Það eru því miður margir sem
vita ekki hvert þeir ætla. Ef svar-
að er: Á æfingu hjá Val, er það
von okkar, forráðamanna Vals, að
það sé góð trygging fyrir heil-
brigðum tómstundum.
Það er von okkar að enginn sjái
eftir þeim stundum, sem eytt er
hér á þessu svæði.
1 kvæði segir Guðmundur Sig-
urðsson:
— Þegar vorsins vindar strjúka
vang-a mína þítt og hljótt,
þá eru þessir moldarmelar
mér í huga dag og nótt.
— Hérna ég í æsku undi
Öll mín beztu sumarkvöld.
— íþróttin hér yndi sáði
— og uppskeran varð þúsundföld.
Fyrir hönd Knattspyrnufélags-
ins Vals býð ég ykkur öll velkom-
in hingað í dag til að sjá og kynn-
ast starfsemi félagsins. Vonast er
til að þið verðið nokkurs vísari, þá
er tilgangi okkar náð.
Jafnframt þakka ég vinum vor-
um og félögum hinna annarra
íþróttafélaga borgarinnar, sem
sýnt hafa oss þann velvilja að
verða við ósk okkar um að koma
hingað á þessum hátíðisdegi okkar
til þess að keppa við okkur, og
þannig skapað nauðsynlega fjöl-
breyttni dagskrárinnar.
Frá aðalfundi
knattspyrnudeildarinnar
Stjórnin, sem nú skilar af sér
störfum, var kosin á aðalfundi
deildarinnar 29. janúar 1968. For-
maður var kjörinn Elías Hergeirs-
son, aðrir stjórnarmeðlimir skiptu
þannig með sér verkum: Skúli
Steinsson varaform. Gísli Sigurðs-
son ritari, Árni Njálsson, gjald-
keri, Árni Pétursson meðstj. Vara-
menn: Sigurður Marelsson, Þor-
steinn Friðþjófsson og Kjartan
Guðmundsson. Gísli Sigurðsson
var fjarverandi frá stjórnarstörf-
um mest allt sumarið vegna at-
vinnu sinnar út á landi, Sigurður
Marelsson gegndi ritarastörfum í
fjarveru hans. Stjórnin hélt 20
bókaða fundi, auk nokkra óbók-
aðra funda, vegna þátttöku í Ev-
rópukeppni meistaraliða og fleiri
mála.
K.R.R. aðalfulltrúi:
Einar Björnsson.
Varafulltrúi: Friðjón. B.
Friðjónsson.
Mótanefnd: Árni Pétursson.
Æfingar og þjálfun.
Stjórnin var svo lánsöm að hafa
reynda og góða þjálfara með hina
ýmsu flokka. Með m., 1. og 2. fl.
var Óli B. Jónsson, sem hættir nú
þjálfun hjá Val eftir 3ja ára
þjálfun. Óla B. eru færðar beztu
þakkir fyrir heilladrjúga þjálfun
hjá Val. 3. flokk þjálfaði Róbert
Jónsson, en hann hefur mörg und-
anfarin ár þjálfað hjá Val með
glæsilegum árangri. 4. flokk þjálf-
aði Lárus Loftsson, af miklum