Valsblaðið - 24.12.1968, Qupperneq 20
18
VALSBLAÐIÐ
Þórarinn Eyþórsson:
„Treysti d samstöðu í deildinni milli allra,
sem starfa í leik og utan((
Þórarinn Eyþórsson í sínu rélta umhverfi. íslandsmeist-
arar Vals (ulanhúss) 1968. Aftari roS frá vinslri: Erla
Magnúsdóttir, Sigrún Ingólfsdóttir, fyrirliói. RagnheiSur
Lárusdóttir, Þórarinn Eyþórsson, þjálfari, Þóranna Páls-
dóttir, Hrafnhildur Ingólfsdóttir. Fremri röS frá vinstri:
Björg GuSmundsdóttir, Soffia GuSmundsdóltir, Sigurjóna
SigurSardóttir, markvörSur, OddgerSur Oddgeirsdóttir,
markv., GuSbjörg Egilsdóttir, Anna B. Jóhannesdóttir.
Mér líkar það vel, að vera kom-
inn aftur til starfa með þessu ágæta
fólki í deildinni, því þar er ríkjandi
rífandi áhugi. Eg er líka ánægður
með byrjunina og Reykjavíkurmót-
ið. Allir flokkar hafa sýnt mjög góð-
an handknattleik, og okkar fólk er
að mínu viti með því bezta í mót-
inu. Það gerir mann líka bjartsýnni
og ánægðari að hafa sér við hlið í
stjórninni fólk, sem maður getur
fullkomlega treyst og lætur sitt ekki
eftir liggja.
Það eru stöðugt að koma fram
ungir menn, stúlkur og drengir, sem
hægt er að binda miklar vonir við,
áhugasamt fólk sem vill taka íþrótt-
ina alvarlega, og fjöldinn í flokkun-
um að vaxa.
Ef við tökum Reykjavíkurmótið
í meistaraflokki karla, þá hafa 18
menn tekið þátt í þessum leikjum,
■og sýnir það að margir komast að
og fá að reyna sig, og að margir hafa
tiltrú, og fá reynslu. Þetta þýðir að
samkeppnin verður mikil, sem ætti
að gefa meiri „breidd“. Það sýnir
líka vilja þeirra sem stjórna að gefa
ungu fólki tækifæri.
1 kvennaflokknum voru það 14
sem léku.
Ég man ekki eftir að svo margir
hafi komizt áður að i svona stuttu
móti.
Það lítur líka vel út með þjálfara
og leiðbeinendur í vetur, og vafa-
laust á það sinn þátt í því að auka
getuna, og það strax á fyrsta mót-
inu.
Það leit ekki vel út fyrir okkur
að fá þjálfara í vetur fyrir meistara-
flokk karla, en úr þessu rættist og
það betur en við höfðum gert ráð
fyrir, fyrir aðstoð góðs vinar míns,
sem raunar er úr öðru félagi. Okkur
tókst sem sagt að ráða Reyni Ölafs-
son, kunnan handknattleiksmann.
úr KR og gamlan landsliðsmann.
Eftir reynslu okkar af Reyni þenn-
an tíma, held ég að það hafi orðið
okkar stóri happdrættisvinningur í
ár.
Hann stjómar æfingunum með
myndugleik, er ákveðinn, og veit vel
hvað hann viU. Ef til vill hefir þetta
verið maðurinn sem okkur liefir
vantað um langt skeið. Hann er járn-
harður, en vinsamlegur þó, og mér
virðist hann henta okkur mjög vel.
Við erum því mjög ánægðir með
Reyni.
Hann leggur áherzlu á þrekþjálf-
un leikmanna, og verða þeir að und-
irgangast það. Það sem af er hefir
mér og okkur öllum þótt sérlega gott
að vinna með Reyni.
Ég vil við þetta tækifæri þakka
Ragnari Jónssyni fyrir samstarfið á
siðasta keppnistímahili. Okkur féll
vel við hann og þann áhuga sem
hann sýndi. En hann var ekki heill
heilsu og gat því ekki beitt sér eins
og hann hefði óskað.
Hugur hans til félagsins og strák-
anna er alltaf hinn sami, því oft
spyr hann um strákana og hvernig
gangi.
Við i stjórn deildarinnar höfum
verið óánægðir með ýmis atriði í
handknattleiknum hjá okkur, heldur
Þórarinn áfram. Stundum höfum við
átt góða leiki, aðra slæma. Ennfrem-
ur hafa komið slakir leikkaflar, og
heildarútkoman lakari en við töld-
um efni standa til. Undanfarið höf-
um við rætt þetta nokkuð, og leitað
til leikmanna sjálfra til að finna
lausn á málinu. Höfum við í því
sambandi skrifað 23 leikmönnum
bréf og lagt fyrir þá margar spurn-
ingar, sem miða að því að fá þeirra
skoðanir á þessu máh, en þær eru