Valsblaðið - 24.12.1968, Qupperneq 40

Valsblaðið - 24.12.1968, Qupperneq 40
38 VALSBLAÐIÐ hætti, en þegar aðeins var einn völl- ur hér og eingöngu kalt steypibað, og síðar gashitað hað, var um að ræða, og ber að fagna þvi. Glæsilegt íþróttahús hefir risið af grunni hér á Hlíðarenda, til ómet- anlegs gagns fyrir félagsmenn og aðra þá sem stunda æfingar. Þar eru ekki baðklefar sem nima 2—3 menn, með köldum steypiböð- um, heldur stór baðherbergi, sem rúmar tugi manna í einu með heit- um og köldum steypiböðmn. Myndarlegt félagsheimili er opið til fundahalda og samveru félags- manna, verkmikið athafnasvæði til æfinga, bæði grasvellir og malar- vellir, fyrir knattspymumenn og handknattleiksfólkið. Allt er þetta mikil og góð framför. En hefir hin innri glóð, hinn sanni fögnuður félagsmanna haldizt í hendur við bættar ytri aðstæður? Svari hver fyrir sig. Þrettán ár í Knattspyrnu- ráði Reykjavíkur. 1 Knattspyrnuráði Reykjavíkur hefi ég setið í tvö tímabil, ef svo mætti segja, eða á ánmum 1936— 1941, ef ég man rétt, og svo síðan 1961, eða samtals í þrettán ár. Þótt KRR hafi oft verið umdeilt, eins og gengur um þá sem láta að sér kveða, er ráðið óumdeilanlega sú stofnun innan íþróttahreyfingarinnar sem á sér merkilegasta sögu, og gegnt for- ystuhlutverki sínu með miklum á- gætum, og orðið fyrirmynd annarra ráða sem síðar voru stofnuð. Það var Iþróttasamband Islands sem stofn- aði KRR, og hét þá Rnattspyrnu- nefnd Reykjavíkur. Gerðist það m. a. í tilefni af komu fyrsta erlenda knattspymuflokksisn, AB, sem hing- að kom 1919, og eru því aðeins nokkrir mánuðir þar til ráðið verður 50 ára. Skömmu eftir stofnun Knatt- spymunefndarinnar, lögðu nefndar- menn til við ÍSf að starfssvið hennar verði landið allt, og var þá nafni hennar breytt til samræmis við það og nefnt Knattspymuráð íslands. Var þetta samþykkt og hélzt sú skipan allt til ársins 1925, en þá var starfssviðið einskorðað við Reykjavik og nafninu breytt og þá í Knattspymuráð Reykjavikur, og hefir verið það síðan. Með stofnun þessari er fyrsta til- raunin gerð til þess að sameina viss málefni undir einn hatt, og i þessu tilviki knattspyrnuna, en þar var fyrst og fremst fjallað um knatt- spyrnumál Reykjavikur. Starfsemi KRR hefir án efa haft sín áhrif um land allt og verið viss fyrirmynd samtaka um sérmál inn- an héraðanna, viðsvegar um landið. Því verður ekki neitað, að mikil breyting var á anda og starfsháttum KRR frá minu fyrra timabili, og þar til nú. Allt miklu formfastara og hefðbundnara en áður var. Fyrra tímabilið einkenndist meira af félagslegum sérhagsmunum, þar sem hver reyndi að ota sínum tota, og urðu þá oft hnippingar og orða- skak um smámuni. Hafði þar jafn- an sá bezt sem tungumýkstur var, og ýtnastur málafylgjumaður. Nú er það aftur á móti svo, að sú heilla- vænlega þróun hefir orðið að mál- efnin eru látin sitja i fyrirrúmi og sameiginlegir hagsmunir félaganna, sem við erum fulltrúar fyrir, eru látnir ráða. Annars rennur starfið nú orðið í föstum farvegi og mótuð- um af reynslu nær hálfrar aldar. ..Með hóflegu orðalagi“. Rétt er það, ég hefi fengist nokk- uð við að skrifa um knattspyrnu, og munu tæp 40 ár síðan fyrsta ritsmíð mín kom í blaði, en fyrir alvöru tók ég til við þetta 1943. Mest hefir hér verið um að ræða frásögn um gang leikja, og þá með hóflegu orðalagi. Frásögnin hlýtur að byggjast á því sem skeður, „hvernig sem stríðið þá og þá er blandið“. Óskhyggjan ræður þar engu um. Ég hefi lítt átt í prentpexi, en flest verið slétt og fellt. Mér varð það fljótt ljóst, að blöðin voru tæki til að vekja athygli á íþróttum. Það lék ekki á tveim tung- um, að blaðaskrif og umræður um þessi mál hafa gagnger áhrif á mót- un almenningsálitsins. Skynsamleg skríf um íþróttamál og hófleg gagn- rýni hefir áhrif til góðs fyrír íþrótta- hreyfinguna. Tvær línur um íþrótta- atburð eru ekki liklegar til mikilla áhrifa, en stór fyrirsögn og löng trú- verðug frásögn, af því sem er að ger- ast, hefir sín miklu og víðtæku áhrif. I þessu sambandi má geta þess, segir Einar, að ég hefi verið viðrið- inn Vals-blaðið frá því það hóf göngu sína 1939 og síðan er það fór aftur að koma út 1957. Mér hefir þótt gaman að vinna þar með áhugasöm- um samherjum og finna hjá félög- unum almenna viðurkenningu, vel- vilja og skilning á þessari viðleitni okkar. Fyrir okkur, sem að þessu vinnum, hefir lika vakað, með starfi þessu, að það gæti verið einn þátt- urinn í því, að treysta félagsheild- imar betur en ella. Og ekki aðeins það, blaðið bindur á vissan hátt hina eldri, sem lagt hafa skóna á hilluna, áfram við fé- lagið, og gefur þeim tækifæri, á auð- veldan hátt, að skyggnast inn í það, sem er að gerast í félaginu, frá ári til árs. Mál er áS linni. Þetta er nú orðið langt mál, segir Einar, og er timi til kominn að slá botninn í skrafið, sem hvorki er ris- hærra, merkilegra né sker sig úr, umfram fjölda aðra, sem á unga aldri gengu íþróttahreyfingmmi á hönd, sem litlir snáðar, með því til dæmis að hlaupa á eftir knetti og spyrna honum á imdan sér, þessum dularfulla og seiðmagnaða hlut, með mikla aðdráttaraflið, jafnt fyrir leik- menn sem áhorfendur, og svo síðar er árin færðust yfir, sem þátttak- endur í félagsmálastarfinu. Maður þekkir jrmsa, í þessu sambandi, sem unmi og vinna enn á sviði félags- mála íþróttanna, þó komnir séu á efri ár. Ganga þar til starfa með eld áhugans í æðum og af andans fjöri og öðrum reynslunni ríkari. Slikir eru salt hreyfingarinnar. Sannar og raunhæfar fyrirmyndir hinna yngri. Glæsileg fordæmi um þá sem ekki bregðast æskuhugsjónum sínum. Hjá þeim situr áhuginn, eljan og trúin á góðan málstað í fyrirrúmi. Látum þetta vera lokaorðin. Bíddu aðeins við, ég held að ég sé ekki búinn að kreista það sem hægt væri út úr „fyrirsátanum“. Þú hefir tekið þátt í fleiri félagssamtökum en íþróttafélagsskapnum, m. a. bindind- ishreyfingunni. Látum okkur ljúka þessu spjalli með nokkurri frásögn um það. Já, það er rétt, svaraði Einar, ég hefi verið með í samtökum bindind- ismanna, um árabil. Þú getur þess allrækilega í upphafi þessa viðtals.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.