Valsblaðið - 24.12.1968, Qupperneq 50
48
VALSBLAÐIÐ
GÓÐUR GESTUR
Hefir nokkurt reiÖhjól á Islandi oröiö svona frœgt, aÖ fá sjálfan Eusehio sem
knapa? Eigandinn, sem töltir á eftir, unir þessu sýnilega vel!
leiktímann, myndi víst engan hafa
órað fyrir. Úrslitin vöktu og mikla
athygli víða um heim. Benfica-
mönnum var sagt það við komuna,
svo sem áður getur, að Valur hefði
ekki beðið ósigur á heimavelli í
slíkum kappraunum, enn sem kom-
ið væri, þá brostu þeir og kváðust
mundu leggja á það áherzlu, að
slíku yrði ekki til að dreyfa eftir
leikinn. En það tókst ekki, enn er
Valur ósigraður í Evrópukeppni á
heimavelli. Nú án þess að mark
væri skorað.
Ekki verður svo skilizt við heim-
sókn þessa eða frásögn um hana,
að ekki sé þess getið, hversu veður-
guðirnir léku við Val að þessu
sinni. Allan þann tíma, sem for-
sala aðgöngumiða stóð yfir var
hver dagurinn öðrum betri, sumar-
blíða dag hvern, og sjálfan leik-
daginn var sama dásamlega veðr-
ið. Hversu sem undirbúningur er
góður má segja, að flest sé fyrir
gíg unnið i sambandi við slíka
leiki sem þessa, ef veðrið bregzt.
Þá skal þess getið að iokum, að
allur undirbúningur og skipulag
að móttökum þess heimsfræga liðs,
var í höndum yngri félaga Vals.
Hinir eldri og „reyndu“ félagar
komu þar lítt sem ekkert við sögu,
að undanskildum einum. Vallar-
stjóri Baldur Jónsson og starfs-
fólk hans á Laugardalsveili á einn-
ig sérstakar þakkir skyldar af
Vals hálfu fyrir framúrskarandi
gott samstarf og margþætta fyrir-
greiðslu hér að lútandi. EB
Um nokkurt árabil hefur nafnið
Eusebio verið nokkurskonar goða-
heiti í knattspyrnuheiminum. Fjöl-
miðlunartæki um víða veröld hafa
keppzt um að bera á hann lof. Það
verður því ekki annað sagt en að
góðan gest hafi borið að garði,
þegar hann kom til íslands til að
keppa með Benfica 18 sept. s.l.
Allir hlökkuðu til að sjá lið
þetta, sem svo mikla frægð hefur
getið sér, en þó munu menn fyrst
og fremst hafa hlakkað til að fá
að sjá Eusebio í leik. Það mun ekki
ofsagt að hann sé frægasti knatt-
spyrnumaður, sem hingað hefur
komið og leikið. Koma hans og
Benfica verður því að teljast
stærsta ævintýrið í knattspyrnu á
landi hér.
Þessi geðþekki maður frá Mos-
ambique í Vestur-Afríku hefur
alla kosti sem einn knattspyrnu-
mann má prýða: Leikni, staðsetn-
ingar, samleiksskynjun, skothörku,
þjálfun og prúðmennsku.
Hannbyrjaði að keppa með Ben-
fica 1961, og hefur síðan verið að
feta sig uppá frægðartindinn og
stendur nú þar, ímynd þess full-
komnasfca sem um getur í fari
spyrnumanns.
1 þessu sambandi má geta þess,
að öll framkoma hans utan vallar
speglar einnig hinn sanna íþrótta-
mann.
Komu hans verður því lengi
minnzt hér á landi sem stórvið-
burðar.
Valsmenn!
Ef J)ið fcurfið að minnast látins ættingja eða vinar, j)á munið MinningarsjóÖ Krisljáns Helga- sonar.
-K
Minningarspjöldin eru Bókabúð Braga. sejd í