Valsblaðið - 24.12.1968, Síða 53

Valsblaðið - 24.12.1968, Síða 53
VALSBLAÐIÐ 51 Dómara-„tríóiö“ og fyrirliðar liSanna, Hermann til vinstri og Coluna til hægri. unnt og sagði þeim Alfredo og veitingahússeigandanum hvað mér fyndist um matinn á hótelinu. Þá sögðu þeir mér, að þetta væri að mestu leyti sami maturinn, nema að þeir væru ekki með neinar olíur í matnum, eins og flest hótelin eru með. Að þessari dýrindisveizlu lokinni lögðum við af stað á völl- inn. Á leiðinni spurði ég Alfredo, hvað hann myndi vilja segja um Valsliðið. — Það kom mér mikið á óvart, þegar ég sá það í Reykjavík. Ég bjóst satt að segja við stórsigri Benfica. Ég myndi segja, að nokkrir einstaklingar í liðinu gætu náð langt, aðeins ef þeir fengju rétta leiðsögn við réttar aðstæður. — En hvað um Benfica? — Þeir voru mjög góðir í fyrra og þar áður, en ég verð að viður- kenna, að þeim hefur farið aftur. Liðið er orðið of þungt og þörf er fyrir breytingar. Ég held að liðið, eins og það er í dag, verði búið eftir um það bil 2 ár. Nú vorum við komnir á leiðar- enda, klukkuna vantaði ennþá 15 mín. í 9. Fólk var farið að streyma að vellinum og ímynda ég mér að þá þegar hafi u. þ. b. 20.000 manns verið komnir. I Portúgal er það til siðs meðal íþróttafréttaritana að koma saman og ræða málin yfir bjórglasi í svo sem 20 mín. fyrir hvern leik. Svo var einnig núna og fékk ég margar spurningar yfir mig um mitt álit á liðunum og um knattspyrnu á íslandi. Þegar ég sagði þeim að Valsliðið væri 100 °/o áhugamannalið, þá trúðu þeir mér ekki og spurðu, hvort þeir fengju ekki borgað á „bak við tjöldin". Þá svaraði ég því að sjálfsögðu neit- andi en sagði, að þeir þyrftu meira að segja að útvega sér sjálfir og borga æfingafötin sín. Og einnig •að bursta skóna sína sjálfir. Ekki held ég að þeir hafi trúað mér, að minnsta kosti litu þeir ekki út fyr- ir það. Nú átti leikurinn að fara að hefjast, og því fórum við á stað þann, er okkur hafði verið ætlaður. Á vellinum voru 48.000 manns og virtist það ekki vera mikill fjöldi á þessum velli. Þótt myrkur hefði verið fyrir utan völlinn, þá var eins og hábjartur dagur inni á honum. Á áhorfendastæðunum voru margir sölumenn, sem seldu gos, hatta, veifur, íspinna og fleira. Það, sem vakti athygli mína, var að allt voru þetta fullorðnir menn, og sýnir það bezt, hversu fátækt er þarna mikil. Um gang leiksins ætla ég ekki að skrifa nú, það hefur verið gert á öðrum stöðum á sínum tíma. Ég vil aðeins um hann segja þetta núna, Valsliðið sýndi mjög góðan leik frá upphafi til enda, og var Val og íslandi til sóma allan þann tíma, er leikurinn stóð. Það var sarna, hversu mörg mörk Benfica skoraði alltaf héldu okkar menn áfram, leikgleðin og ánægjan var •alltaf sú sama. Reyna að skora mörk og sýna góðan leik, þetta var það, sem Vals-liðið gerði allan tím- ann. Það verður mér ávallt minni- stætt, sem einn hinna portú- gölsku blaðamanna sagði við mig •að loknum leik um leið og hann fór: „Þessir menn eru ekki áhuga- menn“. Þegar leikurinn var búinn fór ég niður í búningsklefa Valsmanna og þakkaði þeim fyrir ánægjuleg- an leik. Þar voru allir hinir ánægð- ustu, enginn að kvarta og kveina yfir tapinu. Allir voru sannfærðir um að þeir hefðu gert sem þeir gátu og það var þeim fyrir mestu. Þetta var þeim Portugölum, sem þarna voru staddir, mikið undrun- arefni, því það þekkist víst ekki hjá þeim eða atvinnumönnum yfir- leitt að þeir geti verið án kvartana að töpuðum leik loknum. Því næst fór ég í klefa Benfica mannanna. Þar ríkti mikil ánægja, en stemmn- ingin var samt allt önnur. Þar voru 2 menn, sem aðeins sáu um að klæða leikmennina úr skónum og taka saman föt þeirra. Síðan voru þar 3 nuddarar sem tóku hvern leikmann í nudd. Þegar ég svo loksins var kominn út frá leikvellinum og ætlaði að fara af stað heim, þá sá ég hvar stór hópur fólks stóð fyrir utan dyr þær, er leikmenn Benfica áttu að fara út um. Ég fór til að sjá hvað þarna færi fram. Um leið og stjarnan Eusebio kom ásamt konu sinni, þá fagnaði hópurinn honum með hrópum og klöppum og fylgdi honum að bifreið hans, sem er gljáandi Mustang, sem kostar of- fjár í Portúgal og ekki nema fyrir ríkustu menn þar að aka á. Þetta var einn af þeim mönnum, sem fá borgað fyrir að leika knattspyrnu, einn af þeim mönnum, sem borið höfðu sigur úr bítum yfir þeim piltum, sem vart eiga fyrir strætis- vagni á æfingu heima á íslandi. Baldvin Jónsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.