Valsblaðið - 24.12.1968, Side 58
56
VALSBLAÐIÐ
Úrvalslið Miian frá árunum eftir stríS og fram áS 1957, en þá lék liS þella góSgerSarleik.
Albert er þar þriSfi frá hœgri, og þar næst Gunnar Green og Liedholm, báSir frá SvíþjóS.
kunna fi’anska Stade-France. Ég
hlakkaði mjög til þess að vera við-
staddur leik þennan. Nú fékk Al-
bert sitt fyrsta tækifæri til þess
að lofa frönskum knattspyrnu-
unnendum, að bera sig saman við
bezta miðherja Frakklands,
blökkumanninn Ben Barek.
Fyrri hálfleikur.
Þennan dag var mjög heitt í
veðri. Að sjálfsögðu háði það Al-
bert mjög. Jæja, leikurinn hófst.
Mér virtist að leikið væri uppá
líf og dauða. Hraðinn og
liarkan í leiknum var eftir því,
enda er þetta einn leikjanna í
Bikarkeppninni frönsku. Fyrri
hálfleik lauk með sigri Stade-
France 2 gegn 0. Bæði mörk skor-
aði hinn snjalli blökkumaður mjög
glæsilega. Um frammistöðu Al-
berts í þessum hálfleik, skal það
sagt frá mínum bæjardyrum séð
var hún góð þótt ekki gæti hann
skorað mark. Ég var sannast mála
orðinn hálfhræddur um að Ben
Barek myndi fara með sigur af
hólmi í þessu einvígi við Albert.
Leikni Alberts.
Seinni hálfleikur var leikur Al-
berts í þess orðs fyllstu merkingu.
1 honum skoraði Albert 3 mörk, en
eitt þeirra var þó dæmt ógilt vegna
rangstöðu. Þessi mörk skoraði Al-
bert eftir að hafa leikið dásam-
lega vel á hinn kunna danska
knattspyrnusnilling Arne Sören-
sen.
Það virtist ekki vera nokkur
vafi á því að Albert og blökku-
maðurinn væru þess vel vitandi,
að þessi leikur skæri úr því hvor
þeirra myndi hreppa titilinn bezti
knattspyrnumaður Frakklands. —
Gerðist blökkumaðurinn svo heit-
ur í leiknum, að í lok hans gekk
hann til Alberts og bauð honum að
slást við sig. Albert vildi að sjálf-
sögðu ekki fara út í slíkt, hélt
hann höndunum niður, og bauð
þeim dökka að slá, ef honum sýnd-
ist svo.
Var nú gengið á milli þeirra og
komið í veg fyrir frekari aðgerðir.
— Þessum leik lauk með sigri
Nancy 3:2.
Hér þekkja allir Islendinginn
Guðmundsson, enda kveða hrópin
alltaf við: Áfram Island. — Já, það
er hrífandi að heyra þúsundir
manna kalla: Áfram ísland! Að
leikslokum komu hundruð manna
til að hylla Albert og þakka honum
fyrir leik hans. I þessum hóp voru
15 Islendingar, sem horft höfðu á
leikinn. Þökkuðu þeir Albert þann
mikla sóma, sem hann hefði sýnt
þjóð sinni.
Frönsk blöð skrifuðu um leik-
inn og sögðu að Albert hefði unnið
leikinp fyrir Nancy, og sigrað
blökkumanninn. Frönsk blöð
skrifa um Albert, og blaðamenn
koma oft í heimsókn til hans.
Landkynningarstarfsemi okkar
fær góðan byr í seglin hér í Frakk-
landi með frammistöðu Alberts. —
Fátt mun vera betra í þeim efnum,
en vinsamleg skrif blaða um Al-
bert, og ekki síður þegar hann
mætir til leiks er þúsundir manna
hrópa af áhorfendapöllunum:
Áfram Island! Áfram Guðmunds-
son! —
Nokkru síðar þetta sama ár
skrifar „France-Football“ um einn
leik er Albert lék með Nancy á
heimavelli:
/ Nancy horfðu 21 leikmaður og
19.000 áhorfendur á „fslenzku
perluna leika knattspyrnu.
.... „Maður dagsins“ var tví-
mælalaust Islendingurinn Albert
Guðmundsson. Tuttugu og einn
leikmaður, samherjar og mótherj-
ar, og um það bil nítján þúsund
áhorfendur, dómarinn og línu-
verðir, gátu ekki haft augun af
honum. Guðmundsson sjálfur, ró-
legur, lét sem ekkert væri og lék
sinn leik. Liðugur, leikinn, lék
hann á mótherjana og skaut, en
gaf ekkert eftir, ef í harðbakkann
sló. Frá stöðu sinni sem innherji
lék Guðmundsson ýmist, sem varn-
ar- eða sóknarmaður. Hann er
sannarlega skipuleggjari hinna
mörgu sigra Nancy-borgar. Hinir
miklu hæfileikar þessa leikmanns
eru að mínu áliti gáfur hans fram
yfir aðra leikmenn.
Þegar hann mætir öðrum leik-
mönnum, er hann alltaf jafnróleg-
ur, jafnvel þó að þrír mótherjar
reyni að gæta hans. Nei, Guð-
mundsson leikur svo sannarlega
með heilanum. Meðan hann er að
leika á andstæðinga sína, liefur
hann augun opin fyrir tækifærum,
sem við það skapast, og þegar
hann framkvæmir lokasendingar
sínar kemur í Ijós, hve vel allt hef-
ur verið hugsað og skipulagt.
Með komu Guðmundsson til
Nancy hefur framkvæmdastjórn
félagsins ekki aðeins fengið skipu-
leggjara sigra þeirra, heldur hafa
þeir fært Nancy-búum „átrúnað-
argoð“ og frönsku knattspyrnunni
„hvítu perluna“ sem er uppáhalds-