Valsblaðið - 24.12.1968, Page 65
VALSBLAÐIÐ
63
Helgi Benediktsson.
Jón Gíslason.
Helgi Benediklsson 15 ára., Islands-
og Valsmeistari í badminton.
Ég var víst kornungur þegar ég
byrjaði að leika mér að knetti, og
mér hefir alltaf þótt það gaman. Ég
hefi víst alltaf haldið með Val, en
ég held að ég hafi gengið í félagið
þegar ég var 10 ára.
Þá lenti ég í fimmta flokki, c-lið-
inu, og fór að keppa fljótlega, og
fyrsta leikinn, sem ég lék í móti,
unnum við 1:0 og var það skemmti-
legt, ég held að það hafi verið KR.
Svo hefi ég fylgzt með þessu upp-
eftir, næst í fjórða flokki B, og það-
an í fjórða flokki A, og síðan í þriðja
flokki B og nú í sumar lék ég ýmist
í þriðja flokki A eða B, og vona að
komast fastur í A-flokk næsta sum-
ar.
Hvenær byrjaðir þú svo að leika
hadminton?
Það var nú ef til vill tilviljun, við
vorum nokkrir strákar í „bófahasar“
suður í Öskjuhlið, og þegar hægðist
rnn „hasarinn“ datt okkur í hug að
fara í íþróttahúsið hjá Val, en þar
var þá hadmintonæfing hjá TBR. Ég
byrjaði þegar, og þótti gaman, ekki
síður en i „bófahasarnum“, og þann-
ig byrjaði þetta. Svo komu fleiri
Vals-strákar, og síðan hófust fastar
æfingar hjá okkur, með TBR.
Svo fór ég fljótlega að keppa, tók
til dæmis þátt í tveimur jólamótum
og vann annað. Nú svo á árinu 1966
varð ég íslandsmeistari í drengja-
flokki, og árið eftir varð ég einnig
íslandsmeistari í tvíliðakeppni
drengja og var það Jón Gíslason sem
þá lék með mér.
Þegar Valur stofnaði svo badmin-
tondeild gekk ég í hana, þótti það
eðlilegra, og hefi æft með Val síðan.
Tók svo þátt í Islandsmótinu s.l.
vetur og varð Islandsmeistari í tví-
liðaleik drengja, en með mér var
Þórhallur Bjömsson.
Mér lízt vel á strákana i Val, og
get vel ímyndað mér að þeir nái
langt í mótunum í vetur. Þetta em
allt góðir félagar, sem halda vel sam-
an, og vona ég bara að þeir æfi af
áhuga.
Ég vil svo að lokum þakka Róbert
Jónssyni fyrir samveruna, ég hefi
fylgt honum gegnum alla flokkana.
Hann hefir verið góðm' þjálfari og
unnið gott starf fvrir Val.
Vona ég svo að strákarnir i knatt-
spyrnunni æfi vel í vetur, og standi
þétt saman.
Jón Gíslason, 15 ára,
fyrirliði í þriðja flokki B:
Jón Gíslason er ekki við eina fjöl-
ina felldur varðandi iðkun íþrótta,
hann er keppandi í knattspymu,
keppandi í badminton og iðkaði um
skeið handknattleik, en hefir nú af-
skrifað þá grein, „en það var ein-
um of mikið“, sagði Jón í stuttu
spjalli við Valsblaðið, en það fer hér
á eftir.
Ég gekk í Val þegar ég var 10 ára,
fór kaldur og ákveðinn á æfingu, og
annar strákur með, og gekk í Val,
það var svo stutt frá, þar sem ég
átti heirna Þá var ég nýfluttur frá
Vestmannaeyjum, en þar var ég í
Tý, og spilaði þar, og er alltaf hálf-
gerður Týrari síðan.
Lék fyrsta leik minn í Miðsum-
arsmóti sama ár og ég gekk í félag-
ið. Ekki man ég sérstaklega eftir þess-
inn fyrsta leik, en ég man vel eftir
úrslitaleiknum við KR í Haustmót-
inu. Allir höfðu spáð því að KR
mundi vinna leikinn, þeir höfðu ver-
ið beztir þá undanfarið. Við strák-
amir vomm ákveðnir að gera sem
við gátum og sjá hvað við kæmumst,
og við unnum 2:1 að mig mhmir.
Þetta fannst okkur stórkostlegt. Ég
man líka þegar ég skoraði fyrsta
markið í leik, en það var í æfinga-
leik við Fram. Það var þægilegt að
hugsa til þess, og skemmtilegt.
Annars hefi ég oftast verið í vörn:
bakvörður eða framvörður. Félagslif-
ið finnst mér ágætt og andimi í
flokknum er mjög góður, og halda
strákamir vel saman og þá oft í smá-
hópum. Það er léttur andi á æfing-
mn og stundum fjúka „brandarar“,
sem vekja hlátur.
Mér finnst Sigurður Dagsson
skemmtilegur knattspymumaður og
mér fellur Reynir Jónsson vel þeg-
ar honum tekst upp.
Ég held að þriðji flokkurinn í
sumar verði nokkuð góður ef strák-
amir halda saman og æfa vel. Að
vísu gengu flestir upp úr þriðja
flokki í haust, en við eigum góða
viðkomu, ef vel er á haldið.
Margfaldur Islands- og Reykfa-
víkurmeistari í badminton.
Ég byrjaði að leika badminton
1964 hjá TBR. og tók þá strax til
við að keppa það sama ár. Þetta
byrjaði á því að við Ragnar Ragnars-
son vorum að slá badmintonbolta á
milli okkar, og gekk þetta bara vel
að okkur fannst og ákváðum við að
fara á æfingu hjá TBR og gengmn
í félagið. Þetta var miklu skemmti-
legra að leika sér á merktum velli
með neti. Þetta gekk furðu vel. Á
þessum árum, sem ég var i TBR,
varð ég tvisvar íslandsmeistari og
tvisvar Reykjavíkurmeistari, og einu
sinni vann ég innanfélagsmót í TBR.
Þegar Valur stofnaði svo badmin-
tondeild, fannst mér eðlilegra að ég
væri þar, en sú deild hefir starfað í
rúmt ár. Á þessu ári varð ég ís-
landsmeistari og Reykjavíkurmeist-
ari, og fyrsti unglingameistari i imi-
anfélagsmóti Vals. Ennfremur vann
ég opið mót á Akranesi i badminton.
Þegar ég lék í tviliðaleik í TBR
lék Helgi Benediktsson með mér og
hefi ég þar góðan félaga með mér.
I Valsmótinu lék ég með Ragnari
Ragnarssyni. Annars leikum við
Helgi saman í vetur.
Ég tel þetta góða byrjun hjá hinni