Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1905, Blaðsíða 82
54
við „leistinn", eins og jþegar eg sá liann fyrst
í æsku. Hann er nú öldungur orðinn, en að öðru levti
leyti alveg sá saini, ern og fjörugur og kátur og hjartað
funheitt innan undir úlpunni. Ætti hann að vera hér á
vegum Hclga magra, því hann er sannur íslendingur í
lund, þó lengi hafi hann nú mest mök haft við aðrar
jþjóðir.
Upp með Columbia-ánni alla leið til borgarinnar Port-
land þutum við með lestinni um kveldið. Lentum þar á
einni hinni glæsilegustu gistihöll, sem unt er að hitta, •*
átum þar og sváfum og nutum lifsins eins og konungar.
Landslag með fram Columbia-ánni er skínandi fagurt.
Þrír göfugir fjallstindar standa þar á verði og gnæfa
við himin og nefnast þeir liood fHettan), Adams ogSt.
Hclcns. Borgin er höfuðborg Orcgon- ríkis, er dregur
nafn sitt af hinu forna nafni Columbia fljótsins. Lega
borgarinnar er hin fegursta og hvergi Ieizt mér jafnvel
á mig á allri ströndinni, enda stendur hún að auðæfum og
nldri öðruni borgum á þessu svæði framar. Árið 1905 á
liér að lialda sýning mikla 'fyrir öll ríkin á vesturströnd-
ínni. Er sú sýning kend við þá Lewis ^g Clarkc, fyrstu
landkömumarmennina, sem fyrir hundrað árum réttum
sögðu heiminum fyrstu áreiðanlegu sögurnar af landinu,
og er nú þegar farið að efna til hennar af miklu kappi.
Má þá búast við, að margur bregði sér vestur til þess að
íá hugmynd uin Kyrrahafsströndina og þá ljómandi
framtíð, sem alt það mikla land hlýtur að eiga fyrir hendi.
Af því landið er svo tröllauknum skógi vaxið, tekur það
óralangan tíma að yrkja það og rækta í samanburði við
•sléttlendið skóglausa, sem á einu vetfangi breytist í blóm-
lega akurrreiti, um leið og mannshöndin snertir við því.