Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1962, Qupperneq 9
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
9
Stefán Júlíusson:
Fleiisborg í
Þegar ég var að alast upp í
Hafnarfirði, vitnuðu mörg örnefni
* bænurn um starfsemi erlendra
manna á liðnum öldum. Þar var
Hellyersstöð, Brydehús, Hansens-
búð, Haddensbryggja, Linnetstíg-
l'r, Proppélóð. Sum þessara örnefna
voru ný, önnur aldagömul, enda
mátti svo lieita, að Hafnarfjörður
væri vettvangur erlendra kauþsýslu-
°g útgerðarmanna frá því um alda-
ntótin 1400 og fram á })riðja tug
þessarar aldar. Flest þessi nöfn eru
nú liorfin, eða að hverfa. Enn hef
vg þó ekki nefnt það útlenda heit-
■ð, sem einna oftast var á vörum
fólks, og raunar var landskunnugt,
en það er Flensborg. Og þetta heiti
mun ekki liverfa úr sögunni, þótt
Frú Þúrunn Jónsclótlir.
isheiti skólafólksins þar dálítið
furðulegt. En þegar ég var sjálfur
orðinn nemandi í skólanum, hefði
ég ekki annað viljað kallast en
Flensborgari, þótt við skólafélag-
arnir værum stundum kallaðir
Flensarar í háðungarskyni, ef ein-
hver þóttist eiga okkur grátt að
gjalda.
Flensborg í Hafnarfirði dregur
nafn sitt af józku borginni Flens-
borg, en hún stendur sunnarlega á
Jótlandi, í Slésvíkurhéraði, sem
ásamt Holtsetalandi var löngum
þrætuepli Dana og Þjóðverja. Nú
eru landamærin rétt norðan við
borgina, og mun hún vera nokkru
stærri en Reykjavík. F'rá þessari
suðurjózku borg komu kaupmenn
Sira Þórarinn Böðvasson prófastur.
°nnur erlend nöfn týni nú óðum
tölunni, því að gagnfræðaskólinn í
bænum hefur nú borið þetta nafn
1 atta áratugi, og engar líkur eru
^yrir því, að þar verði breyting á
gerð. Enda er svo ráð fyrir gert í
ráðuneytisbréfi frá árinu 1932, að
skólinn skidi framvegis lieita Flens-
borgarskóli, eins og hann hafði þá
verið kallaður í hálfa öld.
Það er naumast nema von, að
lólk velti því fyrir sér, hvers vegna
Hafnfirðingar telja það sjálfsagt og
eðlilegt, að framhaldsskóli þeirra
beri þetta gamla, danska nafn. Eins
"rætti líka spyrja: Hvernig stend-
Ur á þessu nafni í bænum, og hvers
Vegna hefur ]>að unnið sér slíkan
Þegnrétt í hugum bæjarbúa og
raunar landsmanna allra? Skólar á
bslandi bera yfirleitt ekki erlend
uöfn, og fremur hefur verið haml-
að gegn þvj undanförnum ára-
ö'gurn, ag opinberar stofnanir
æ> u útlend heiti. Flensborgarar
Seltu ávallt allmikinn svip á bæ-
ln,r, þegar ég var að alast upp, og
Úrstu þótti mér þetta auðkenn-
til Hafnarfjarðar fyrir um það bil
eitt hundrað og áttatíu árum og
reistu sér síðar verzlunarhús fyrir
botni fjarðarins, þar sem hann
gengur lengst inn í landið að sunn-
anverðu. Ekki verður fyllilega séð
af gögnurn, hvaða ár þetta var, en
líkur mæla með því, að þeir hafi
byggt árið 1794. Tóku þeir lóð-
ina á leigu af konungi. Var liinn
nýi verzlunarstaður kallaður eftir
lieimaborg þeirra, og festist nafnið
fljótt við staðinn. Var þetta all-
mikið landsvæði, enda þurfti tölu-
vert olnbogarými fyrir verzlun á
þeirri tíð. Seinna keypti verzlunin
svo landareignina.
í F'lensborg var verzlað til árs-
ins 1875, og voru margir verzlunar-
stjórar á þeim átta til níu áratug-
um, sem þar var verzlað, ýmist
danskir eða islenzkir. Afkomendur
þeirra sumra urðu merkir menn í
íslenzku þjóðlifi. Má meðal þeirra
nefna Tliorgrímsen verzlunarstjóra
á Eyrarbakka og Morten Hansen
skólastjóra í Reykjavík, sem báðir
voru fæddir í ldensborg í Hafnar-
Hafnarfirði
firði. Gísli J. Johnsen stórkaupmað-
ur mun vera afkomandi Flensborg-
arkaupmanna.
En árið 1876 urðu mikil þátta-
skil í sögu Flensborgar. Það voru
þessi þáttaskil, sem urðu því vald-
andi, að nafnið lifir til þessa dags
og mun halda áfrarn að lifa um
ókornin ár. Þá keypti islenzkur
rnaður Flensborgareignina, ekki í
því augnamiði að reka þar áfram
verzlun, heldur til þess að setja
þar á stofn barnaskóla fyrir Garða-
prestakall á Álftanesi. Þetta var
harla merkilegt tiltæki af kaupand-
anum, í rauninni einstakt framtak,
því að á þeirri tíð var enn næsta
lítið hugsað fyrir alþýðumenntun
og barnafræðslu með föstu sniði.
Sá, sem keypti Flensborgareign-
ina í þessum tilgangi fyrir áttatíu
og sex árum, var prófasturinn i
Görðum, sr. Þórarinn Böðvarsson.
Seljendur voru Knudtzonfeðgar,
sem lengi höfðu verið athafnasam-
ir kaupmenn í Hafnarfirði, enda
var ætt þeirra kunn kaupsýsluætt i
Danmörku. Ári síðar en kaupin
voru gerð, stofnuðu þau prófasts-
hjónin í Görðum skólasetur í
Flensborg og gáfu til þess miklar
eignir, svo skólinn gæti orðið sjálfs-
eignarstofnun, er stæði sem mest á
eigin fótum. Skólann stofnuðu þau
til minningar um son sinn, Böðvar,
er andaðist árið 1869, 19 ára gam-
all, þá nemandi í lærða skólanum í
Reykjavík. Var Böðvar bráðefni-
legur piltur, góður námsmaður og
hvers manns hugljúfi. Gjafabréf
Jieirra prófastshjóna er á þessa leið:
„Síðan forsjóninni fyrir 8 árum
síðan þóknaðist að svipta okkur
hjónin okkar elskaða syni Böðvari,
hefur það verið ósk okkar að heiðra
minningu þessa okkar ógleyman-
lega sonar með því að gefa nokk-
urn hluta af eignum okkar til ein-
hvers þess fyrirtækis, sem eflt gæti
menntun og góða siði meðal al-
mennings í föðurlandi okkar, og
höfum við í þessum tilgangi afsal-
að og gefið til stofnunar alþýðu-
skóla þær fasteignir, er nú skal
greina:
1. H úseign okkar í Flensborg í
Hafnarfirði með þar tilheyrandi
túni og annarri lóð, eins og hún er
afsöluð með afsalsbréfi liins fyrra
eiganda, stórkaupmanns P. C.
Knudtzons, dags. 17. júlímán. f. á.
2. Eignarjörð okkar, heimajörð-
ina Hvaleyri í Álftaneshreppi í
Gullbringusýslu, 18.3 hndr. að dýr-
leika eftir nýju mati, með tilheyr-
andi húsum.
Böðvar Þórarinsson.
Um þessa gjöf lýsurn við yfir
þeim vilja okkar,
að hún verði höfð til stofnunar
alþýðuskóla,
að þessi skóli verði fyrst og fremst
barnaskóli fyrir Garðaprestakall á
Álftanesi.
að hann þar næst, eftir því sem
efni og kringumstæður leyfa, jafn-
fram verði almennur menntunar-
skóli, þar sem kostur sé á að afla
sér þeirrar þekkingar, sem álítast
má nauðsynleg hverjum alþýðu-
manni, er á að geta kallazt vel að
sér.
Ennfremur er það vilji okkar, að
skólinn og skólaeignirnar séu und-
ir stjórn þriggja manna nefndar, er
stiftsyfirvöldin yfir íslandi skipi,
en að stiftsyfirvöldin liafi yfirum-
sjón með skólanum og gæti þess, að
efnum hans sé varið samkvæmt til-
gangi gjafarinnar, svo og, að stifts-
yfirvöldin eftir tillögum skóla-
nefndarinnar setji reglugerð fyrir
skólann um allt fyrirkomulag hans
og stjórn.
Fyrir því afsölum við hérmeð frá
okkur og okkar erfingjum í hinu
umrædda augnamiði ofannefnda
húseign og jörð, og eru eignir þess-
ar upp frá þessu fullkomlega heirn-
ilar til allra umráða og afnota
handa slíkri skólastofnun, sem að
ofan er um getið, en verða undir
okkar umsjón þangað til skóla-
nefnd hefur verið skipuð og húr.
getur tekið við umráðum yfir þeim,
Görðum, 10. ágúst 1877.
Þórarinn Böðvarsson.
Þórunn Jónsdóttir."
Verzlunarhúsið í ldensborg, sen.
nú varð skóli, var mikil bygging o[
traustlega byggt. Það var reist upp
úr 1812, en þá brann fyrsta verzl
unarhúsið í Flensborg. Byggingir