Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1962, Side 11
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
11
gagnfræðapróf þaðan. Nú hefur
landsprófið leyst þennan vanda.
Ég var í Flensborg á árunum
1929—32. Þessi ár voru mikil breyt-
inga- og umbrotaár í sögu skólans.
Eftir fyrsta vetur minn í skólanum
skemmdist gamla Flensborgarhúsið
svo í eldi, að ekki þóttu tiltök að
gera við það. Var þá rifið það, sem
eftir stóð. Þá stóð eftir á sjávar-
bakkanum gamla skólahúsið frá
1906, lág bygging og hnípin, gisin
og úr sér gengin á margan hátt,
svo að gjörla mátti sjá endalokin.
Samt varð hún að endast í sjö ár
enn. Eftir brunann hætti Ögmund-
nr Sigurðsson skólastjórn, sjötugur
að aldri, og heimavistin lagðist að
sjálfsögðu niður. Fullur hugur var
t forráðamönnum skólans að fá
nngan og ötulan skólastjóra til að
taka við starfi hins kunna skóla-
manns. Það tókst líka. Sr. Svein-
björn Högnason varð skólastjóri
haustið 1930, þá rúmlega þrítugur.
En hann var aðeins einn vetur.
Sóknarbörn hans austur í Rangár-
þingi vildu ekki missa hann, og
hvarf hann þá austur aftur. Hef ég
varla séð meira eftir öðrunt manni
úr starfi. Þá tók Lárus Bjarnason
við skólastjórn, en hann hafði kom-
ið að skólanum með sr. Sveinbirni.
Stýrði hann skólanum í tíu ár.
Við gagnfræðingarnir, sem braut-
skráðumst frá Flensborg á hálfrar
aldar afmæli skólans, árið 1932,
höfðum því þrjá skólastjóra, og
önnur kennaraskipti voru einnig
mikil. Hellubjargið í kennaralið-
inu á þessum umbrotaárum var sr.
Þorvaklur Jakobsson, sem kenndi
islenzku og stærðfræði, merkur
ágætiskennari. Á þessum árum
sagði heimskreppan til sín í skóla-
haldi sem öðru. Við vorum tuttugu
og fjögur, sem hófum nám í 1.
bekk, en aðeins tíu runnu skeiðið
til enda, hin höfðu helzt úr lest-
inni. Samt brautskráðumst við
þrettán gagnfræðingar þetta vor;
þrír höfðu bætzt í hópinn á leið-
inni.
En aðalbreytingin var þó sú, að
á þessum árum komu til fram-
kvæmda ný lög um gagnfræðaskóla
í landinu. Skyldu þeir kostaðir af
opinberu fé í öllum kaupstöðum
landsins. Á þessum árum breyttist
Flensborgarskólinn því úr sjálfs-
eignarstofnun í ríkisskóla. Reglu-
gerð fyrir rikisskólann var einmitt
sett árið 1932, á hálfrar aldar af-
mæli skólans, og setti ráðuneytið
þá' ný ákvæði um gjöf prófastshjón-
anna í Görðurn, sem ekki þurfti
lengur að standa undir skólanum í
Flensborg.
Þegar héraðs- og gagnfræðaskól-
ar tóku að rísa upp víðs vegar um
landið, varð Flensborgarskólinn að
sjálfsögðu í æ ríkari mæli skóli
fyrir Hafnarfjörð, en áður höfðu
löngum sótt hann nemendur víðs
vegar að, enda voru gagnfræðaskól-
ar lengi aðeins tveir á landinu. For-
ráðamenn skólans vildu þó gera sitt
lil að halda við gamalli skipan, og
þegar nýtt skólahús var reist á
Hamrinum, var höfð í því heima-
vist. Fn tímarnir voru óumdeilan-
lega breyttir; heimavistin lagðist
fljótlega niður. Bæjarbúum fjölg-
aði líka ört á þessum árum. Ekki
Jón
Þórarinsson,
fyrsti
skólastjóri
i Flensborg.
kom til greina að byggja aftur upp
á gamla staðnum niðri í fjörunni
fyrir botni fjarðarins. Aukið at-
hafnalíf og nýtt skipulag kaupstað-
arins hlaut að krefjast Flensborg-
arlóðarinnar gömlu til annarra
hluta. Nú stendur íshús Hafnar-
fjarðar þar, sem skólahúsið stóð,
og Strandgata og Hvaleyrarbraut
greinast þar, sem Flensborgartúnið
var áður.
Lárus Bjarnason var skólastjóri,
þegar skólinn flutti í hina veglegu
byggingu uppi á Hamrinum árið
1937. Hann var skólastjóri til árs-
ins 1941 en þá tók Benedikt Tóm-
asson skólayfirlæknir við skóla-
stjórn. Var hann til ársins 1955, að
núverandi skólastjóri, Ólafur Þ.
Kristjánsson, tók við. Þannig hafa
aðeins sex skólastjórar verið í
Flensborg þau áttatíu ár, sem gagn-
fræðaskólinn hefur starfað; þar
með talinn sr. Sveinbjörn Högna-
son, sem aðeins var eitt ár.
Nú kynni einhver að spyrja:
Hvað varð þá um gjöf þeirra pró-
fastshjóna í Görðum, þegar ekki
var lengur grundvöllur fyrir sjálfs-
eignarskólann Flensborg. Því er til
að svara, að gjafasjóður sr. Þórar-
ins og frú Þórunnar er enn til, og
Fimleibaflokkttr kvenna 1959
Efsta röð f. v.: Guðrún Guðmundsdóttir, Anna Erlendsdóttir, Álfheiður Kjartansdóttir, Dóra Skúladóttir, Friða
Stefáns kennari, Ásthildur Magnúsdóttir, Helga Magnúsdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir, Ásta Baldvinsdóttir.
Miðröð: Margrét Sigurðardóttir, Einhildur Pálmadóttir, Sigurlaug Arnórsdóttir, Hrefna Marteinsdóttir, Þor-
gerður Þorvarðardóttir, Elín Magnúsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Jóhanna Hansdóttir, Ásta Magnúsdóttir.
Fremsta röð: Elín Arnórsdóttir, Guðný Jensdóttir, Þóra Þorvaldsdóttir, Valgerður Jónsdóttir, Þorgerður Gísla-
dóttir og Eygló Eyjólfsdóttir.
Ólafur Þ.
Kristjánsson,
núverandi
skólastjóri
i Flensborg.
enn er hann í tengslum við skól-
ann. En í reglugerðinni frá 1932,
sem ég gat um fyrr, er þetta ákvæði:
„Aklrei má verja fé sjóðsins til út-
gjalda, sem greiða skal lögurn sam-
kvæmt af opinberu fé.“ Þótt ákvæð-
ið sé að sjálfsögðu réttmætt, er
hlutverki sjóðsins þannig óneitan-
lega þröngur stakkur skorinn. Þó
hafa nemendur skólans oft notið
fjárframlaga úr sjóðnum á undan-
förnum árum, bæði til gagns og
ánægju. Bæjarfógeti og bæjarstjóri
í Hafnarfirði hafa á hendi stjórn
sjóðsins, ásamt einum stjórnskip-
uðum fulltrúa, sem nú er skóla-
stjórinn í Flensborg. Árið 1956
keypti Hafnarfjarðarbær eignar-
lendur sjóðsins með mjög hagstæð-
um kjörum. Og alla tíð hefur bær-
inn notið ríkidega gjafar þeirra
prófastshjóna, og stendur Hafnar-
fjarðarkaupstaður því í ævarandi
þakkar- og fjárhagsskuld við Flens-
borgarskólann. Gjafasjóðurinn er
nú rúmar 2 milljónir króna.
Af því, sem ég hel’ nú rakið, má
það ljóst vera, að Flensborgarnafn-
ið á gagnfræðaskólanum í Hafnar-
firði er eins konar minnistákn um
höfðingslund prófastshjónanna í
Görðum og þann merka skóla, sem
þau stofnuðu til minningar um son
sinn. En jafnframt er í nafninu
bundin minning um hinn soninn,
sem svo farsællega stýrði skólanum
fyrsta aldarfjórðunginn og gerði
garðinn frægan. Þótt nafnið hljómi
allútlenzkulega, er það samt nor-
rænt að uppruna. Borgin á Jót-
landi hét upprunalega Fleinsár-
borg, virkið við Fleinsá. Manns-
nafnið Fleinn mun hafa verið til á
Norðurlöndum í fornöld, í líkingu
við nafnið Geir. En vel gat áin líka
dregið nafn sitt af vopni, sem þar
hefur týnzt eða fundizt. Fleinsár-
borg hefur síðan breytzt í Fleins-
borg, og Fleinsborg í Flensborg.
Ég get þessa hér í lokin til gam-
ans fyrir þá, sem áhuga hafa á nafn-
giftum og nafnbreytingum. Mestu
máli skiptir þó hitt, að í átta ára-
tugi hefur í skjóli Flensborgar-
nafnsins gerzt í Hafnarfirði hin
merkasta saga, sem er snar þáttur
af þjóðarsögunni sjálfri. Vonandi
verður svo áfram um alla framtíð.
Grein þessi er útvarpserindi, flutt
s. 1. sumar. Heimildir: Saga Hafnar-
fjarðar, Minningarrit Flensborgarskóla,
skólaskýrslur o. fl.
S. J.