Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1962, Síða 25
ALÞYÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
25
Flygenring, og gekk svo fram til
1930, að fyrirtæki þeirra hætti.
Part úr ári á þessu tímabili var
verzlun rekin í gömlu búðinni, en
hætti síðan. Nú voru skrifstofurn-
ar allar í vesturenda. En fyrir utan
verzlunarrekstur þennan var búð-
inn otuð til geymslu á ýmis konar
vörum.
Eftir að Flygenringsbræður liættu
utgerð og fiskverkun á þessari stöð,
sem venjulega var kölluð „Edin-
horgarstöð“, var hljótt þar um-
hverfis nokkra stund.
1931 var af bæjarstjórn Hafnar-
Ijarðar stofnað til bæjarútgerðar
nreð kaupum á togaranum „Maí“
°g voru þá öll hús sem uppistand-
andi voru af fyrri Edinborgarhús-
inu tekin undir þessa starfsemi.
Færðist þá aftur líf og fjör í tusk-
urnar í þessu gamla húsi. Skrifstof-
ur voru í vesturenda, eftir sem
áður, herbergi í miðju húsinu tek-
in fyrir skrifstofu framkvæmdar-
stjóra og fundarherbergi útgerðar-
ráðs, en búðin var eftir sem áður
höfð fyrir geymslu. Skömmu eftir
stofnun Bæjarútgerðarinnar var í
búðinni hafizt handa um stofnun
„Pöntunarfélags" á vegum Verka-
mannafélagsins Hlífar og gekk
svo nokkurn tíma. Var Pöntunar-
félag þetta vísir að stofnun Kaup-
félags Hafnfirðinga. Eftir að Pönt-
unarfélagið hætti jsarna var búð-
inni breytt í kaffistofu. Strax og
Bæjarútgerðin tók við húsinu, var
farið að nota kjallarann til geymslu
á ýmsum áhöldum fyrirtækisins. En
það mun hafa verið 1932 að vestur-
endi kjallarans var tekinn og þar
settir upp tveir fangaklefar fyrir
bæjarfógetaembættið og lögregluna,
en nokkur hlutinn var geymsla lög-
reglunnar og tollgæzlunnar. Þessi
staður var notaður í þessu augna-
miði um 12 ára bil. Var mikil furða
hve vel tókst til um þessa fanga-
geymslu, þegar þess er gætt að klef-
arnir voru af timbri gerðir. Kom
æði margt fyrir, sem í frásögu væri
færandi, en verður sleppt hér.
Á svipaða leið fór fyrir þessu
húsi, sem fyrr hafði farið fyrir húsi
Jóns Bjarnasonar. Það féll í skugga
annars og veglegra húss og lagðist
í auðn og gleymsku við byggingu
hins rnikla „Fiskiðjuvers“ Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar.
Það var þá sem Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar gaf þetta gamla hús
Skátafélaginu Hraunbúum. Og var
það þá flutt upp á hraun vestan
til við Reykjavíkurveginn og þar
er það nú hafið til vegs, sem sama-
staður þessa göfuga félagsskapar.
Er ekki vafi á að hús þetta mun
stuðla að því að leiða marga, drengi
sem stúlkur, til mikils þroska, því,
skáti er hjálpsamur, skáti er trú-
fastur og gengur aldrei bak orða
sinna, og allir skátar eru góðir
lagsmenn. Hraunbúar! Til ham-
ingju með nýju húsakynnin, gömlu
búðina!
Hraunbúar byáéja sér íéla^sheimili
Eins og Gísli Sigurðsson greinir frá hér að framan, hefur skátafélagið Hraunbúar eignazt sitt eigið félagsheimili, Hraunbyrgi, og var það
°pnað til afnota 1. júlí s. 1. Þann dag var stanzlaus straumur fólks til þess að skoða heimliið. Hraunbyrgi er tveggja hæða hús og kjallari, 112
lerm. að flatarmáli. Á efstu hæð er 80 ferrn. setustofa, eldhús, geymsla og gangur. Á neðri hæð eru 6 herbergi, snyrtiherbergi og rúmgóð for-
stofa. í kjallara eru geymslur og 50 ferm. salur.
Það var árið 1960 að bæjaxstjórn afhenti Hraunbúum hús þetta í stað 50 þús. kr. byggingaistyrks, sem hún hafði ætlað félaginu árið áður.
Jafnframt hei'ur bæjarfélagið styrkt bygginguna með 60 þús. kr. til viðbótar. Stjórn Sparisjóðs Hafnarfjaiðar liefur lánað Hraunbúum 200 þús.
kr., og fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki í bænum hafa veitt félaginu gjaldfrest vegna efniskaupa og vinnu. Sjálfir hafa skátarnir lagt fram
'iokkuð á 5. þús. stunda í sjálfboðaliðsvinnu, og er hún rnetin töluvert á annað huridrað þúsund krónur. Félagið skuldar nú um 340 þúsund
krónur vegna Hraunbyrgis.
Hraiuxbyrgi fylgir 2500 ferm. lóð, sem bærinn hefur látið skátunum í té. Hraunbyrgi er nxetið á 1.2 millj., kr. og er það brunamótamat.
Hið nýja félagsheimili hefur þegar orðið nxikil lyftistöng fyrir skátastarfið í Hafnarfirði, og lxefur verið þróttmikið starf í félaginu síðan
snemma í haust. Nær 300 börix og unglingar leggja leið sína í Hraunbyrgi í viku hverri, og hxxsið er notað alla daga vikunnar,
Skátafélagið Hraunbúar starfar í sex deildum. Deildarforiixgjar eru: Birgir Guðmannsson, Elísabet Jóhannsdóttir, Jóixíixa Gunnarsdóttir,
^arinó Jóhannsson, Ólafur Proppé og Rúixar Bryixjólfsson.
Stjórn Hraunbúa skipa: Vilbergur Júlíusson félagsforingi, Hörður Zóphaníassoix aðstoðarfélagsforingi, Eiríkur Skarphéðinsson gjaldkeri, Sig-
urbergur Þórarinsson ritari, Eiríkur Jóhannesson, Ólafur Proppé og Marinó Jóhanixsson.