Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1962, Blaðsíða 28
28
ALÞÝÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
Oskar Halldórsson:
Spnrknð í hnlfn öM
Árið 1912 var stofnað fyrsta
knattspyrnufélagið í Hafnarfirði,
Knattspyrnufélagið Kári. Æfingar
stunduðu félagsmenn vestur á Víði-
stöðum. Það eina, sem vitað er um
keppni, er, að Kári lék við skips-
menn af varðskipinu Fylla, og mun
Kári hafa tapað þeim leik, en ekki
eru þó til heimildir um marka-
tölu. Til gamans má geta þess, að
þeir Kára-félagar munu hafa byrj-
að að æfa með knetti gerðum úr
tjörubornum seglastriga og tvinna-
kefli fyrir stút, en munu síðar hafa
safnað fyrir nothæfum knetti. Fé-
lagið sendi umsókn til bæjarstjórn-
ar um afnot af svæði við Víðistaði,
en fengu ekki svar. Talið er að
félagið hafi starfað til ársins 1917.
Knattspyrnufélagið Geysir starf-
aði og um tíma.
Þann 9. júní 1919 var stofnað
Knattspyrnufélagið Framsókn og
nokkrum dögum síðar var stofnað
hér Knattspyrnufélagið 17. júní og
hét eftir stofndegi sínum.
1. september 1919 háðu svo fé-
lögin 17. júní og Framsókn keppni,
sem lauk með sigri 17. júní 2:1.
Eitt fyrsta verk 17. júní var að
leigja æfingasvæði af Bjarna Er-
lendssyni í Víðistöðum, og gekk
Framsókn síðar inn í þá leigu.
Ekki leigðu félögin æfingasvæði að
Víðistöðum lengur en til 1. desem-
ber, en hófust handa með vallar-
gerð á Hvaleyrarholti. Völlurinn
var vígður í ágúst 1920. Við það
tækifæri kepptu félögin 17. júní
og Framsókn. Lauk leiknum með
sigri 17. júní 1:0. Dómari í þess-
um leik var Ben G. Waage, fyrrver-
andi forseti Í.S.Í. 1920 fór fram
meistaramót í knattspyrnu í Hafn-
arfirði.
1920: 17. júní—Framsókn 2:1.
1921: ’7. júní—Framsókn 7:2.
hreinsað og líkhúsið reiðubúið til
að taka við næstu fórn. Þeim, sem
ekki voru nógu líkamlega heilir til
að færa vinnufórn á altari vald-
hafanna.
Frá 16. júlí 1937 til 11. apríl
1945 var þessi hildur háð á hinum
fagra skógarási við Weimar. Lítil-
magninn gegn ofureflinu.
Það var í sannleika sagt notalegt
að sjá aftur friðsæla og lífsglaða
borgina í sólskininu fyrir sér að
heimsókninni til Buchenwald lok-
inni. Sönnun þess að þetta hafði
aðeins verið vondur draumur, sem
var sem betur fer löngu liðinn.
1922: Stofnað til leiks í 3. fl. og
sigraði Framsókn.
1923: 17. júní—Framsókn 2:1.
Árið 1926 keppa svo félögin sam-
eiginlega út á við og stofnuðu
Knattspyrnufélag Hafnarfjarðar.
Keppt var tvisvar við Víking úr
Reykjavík. Sigruðu Hafnfirðingar
í Reykjavík, en jafntefli varð, er
leikið var hér.
Árið 1927 var svo Knattspyrnu-
félagið Þjálfi stofnað.
Öll þessi félög unnu knattspyrnu-
íþróttinni hér ómetanlegt gagn, en
erfið skilyrði á öllum sviðum háðu
starfsemi þeirra svo mjög, að þeim
varð ekki langra lífdaga auðið.
Árið 1929 var stofnað Fimleika-
félag Hafnarfjarðar, sem æfði eins
og nafnið bendir til fimleika og
auk þess frjálsar íþróttir.
Hinn 12. apríl 1931 var svo stofn-
að Knattspyrnufélagið Haukar. —
Árið 1932 byrja Haukar að æfa og
keppa á vellinum á Hvaleyrarholti
og gerðist Gísli Sigurðsson þjálfari
þeirra um skeið og hefir síðan ver-
ið hugsað til hans með þakklæti
og hlýhug úr röðum Hauka.
Um haustið 1932 hættir Þjálfi
starfsemi sinni og virtist um skeið
sem þetta myndi trufla starfsemi
Hauka, en vegna góðrar samvinnu
við félögin í Reykjavík, blómgað-
ist starfið, og má í því sambandi
minnast þess, að Frímann Helga-
son fór þess á leit við K.R.R., að
Haukar fengju að gerast aðilar að
K.R.R., en því var hafnað.
1939 er merkilegt ár í sögu
Hauka. Þá voru uppi raddir um
það, að sameina F.H. og Hauka,
þar sem flestir hafnfirzkir íþrótta-
menn voru i báðum félögunum.
Voru haldnir nokkrir fundir um
þetta mál í báðum félögum. Úr
sameiningu varð ekki, því að hvor-
ugt félagið vildi leggja niður nafn
sitt.
1940 hefjast svo vor- og haust-
kappleikir milli félaganna.
1942 fara F.H. og Haukar sam-
einaðir á íslandsmót undir merki
Knattspyrnufélags Hafnarfjarðar í
1. fl. og verða þá íslandsmeistarar.
1943 fara félögin enn sameinuð
undir merki K.H. Keppni var hag-
að þannig, að hvert lið var úr leik
eftir 2 tapleiki. Einstakir leikir
fóru þannig: K.H-Í.R. 4:1, K.H.-
Valur 2:1, K.H.-Fram 0:4. Um
leiklok hjá öðrum félögum er ekki
vitað, en þrjú lið voru jöfn, þ. e.
Valur, Fram, K.H.
Þar sem þrjú félög urðu jöfn,
áttu Hafnfirðingar að keppa aftur
við hin liðin 2. Skyldu þeir leika
fyrst við Val, en vegna misskiln-
ings mættu Hafnfirðingar ekki til
leiks og var Val dæmdur sigurinn.
1944: íslandsmót I. flokks. Vegna
fjölda félaga, sem tóku þátt í móti
þessu og næsta, var þetta útsláttar-
keppni. K.H. lék tvo leiki: K.H.—
Í.R. 3:0, Í.A.-K.H. 2:0.
1945: íslandsmót I. fl. Nú leika
Hafnfirðingar undir merki hins
nýstofnaða Í.B.H. og leika þar úr-
slitaleik gegn K.R. og sigraði K.R.
með 2:0.
1946 taka Hafnfirðingar ekki
þátt í íslandsmóti.
Öll þessi ár, frá 1940 og til
haustsins 1947, keppa F.H. og
Haukar í vor- og haustmóti, ásamt
svokallaðri Rafha-keppni.
En þá hefst lagfæring á vellin-
um. Sú viðgerð stóð til ársins 1950
og hafði mjög alvarlegar afleiðing-
ar fyrir hafnfirzka knattspyrnu, því
að síðan og þar til haustið 1962
hefur ekki verið keppni í sama
formi og áður var á milli félag-
anna. Á þessu tímabili, meðan lag-
færing stóð yfir á vellinum, rösk-
uðust verulega þau tengsl, sem ver-
ið höfðu á milli knattspyrnuiðk-
enda og stjórna félaganna. Ýmsir
okkar beztu manna hófu að æfa og
leika með félögum í Reykjavík.
1950, þegar völlurinn var tilbú-
inn til æfinga og keppni, virtist
vera töluverður hugur í knatt-
spyrnumönnum. Lið var sent til
þátttöku í íslandsmóti 1. fl., en nú
voru Hafnfirðingar slegnir út í
fyrstu atrennu, það var í leik gegn
Fram 3:1. Staðan var í hálfleik 1:1.
1951 taka Hafnfirðingar ekki
þátt í íslandsmóti, en aftur á móti
í svokallaðri þríhyrningskeppni, þ.
e. Valur Í.A., Í.B.H. Þar sigraði
Í.A., en Valur og Í.B.H. skilclu jöfn
að stigum.
1952 taka Hafnfirðingar þátt í
íslandsmóti 1. fl. og nú er ekki
lengur útsláttarkeppni. Í.B.H. leik-
ur aðeins 2 leiki, tapar báðum og
gefur þann þriðja.
1953 er enginn þjálfari með eldri
flokkana, en Axel Andrésson er
með yngri flokkana.
1954 er fyrsti vísir að algerri sam-
einingu beggja liðanna með Karl
Guðmundsson sem þjálfara.
Árið 1955 skeði svo undrið: Það
byrjar með því, að Karl Guðmunds-
son kemur hér eins og árið áður á
vegum K.S.Í. og þjálfar mánaðar-
tíma. En skömmu eftir að hann
hættir þjálfun, heppnast hafnfirzk-
um knattspyrnumönnum að fá Al-
bert Guðmundsson til þess að taka
að sér þjálfun hér í bæ. Síðar um
haustið kom svo Ellert Sölvason
honum til aðstoðar um nokkurt
skeið. Við Albert blöstu mörg
vandamál, og það sem hefur verið
erfiðast úrlausnar, hefur vafalaust
verið mannfæðin í knattspyrnu-
íþróttinni. Þar sem los komst á
knattspyrnulífið í bænum vegna
lagfæringar á vellinum, sem tók svo
langan tíma, þá höfðu raðir knatt-
spyrnumanna þynnzt svo mjög, að
fátt eitt var eftir af þeim, sem
]. llokkur í knattspyrnu. Efsta röð frá vinstri: Ilelgi Hóseasson, Sigur-
björn Þórðarson, Guðmundur Þórðarson, Páll Ólafsson, Sævar Magnús-
son. Miðröð lrá vinstri: Lárus Bjarnason, Stefán Egilsson, Friðþjófur
Sigurðsson. Neðsta röð frá vinstri: Þorsteinn Jónsson, Guðmundur
Eyþórsson, Jón Egilsson.