Alþýðublað Hafnarfjarðar - 15.12.1962, Síða 38
38
ALÞYÐUBLAÐ HAFNARFJARÐAR
kallandi var að setja upp þvotta-
plan, og hefur það verið steypt í
áföngum árin 1956, 1959 og 1960.
Á þessu ári var svo steypt plan fyrir
frarnan alla stöðina, og hafði Jón
Bergsson bæjarverkfræðingur um-
sjón með því verki. Stjórnendur
Nýju Bílstöðvarinnar hafa kapp-
kostað að hafa sem snyrtilegast í
kringum stöðina, svo að hún mætti
verða bæjarprýði og stjórnendum
til sóma. Hefur Ólafur Vilhjálms-
son, sem er kunnur snyrtimaður,
gengið fram í þessu. Nýja Bílstöðin
hefur hlotið verðlaun hjá Fegrun-
arfélagi Hafnarfjarðar fyrir góða
og snyrtilega umgengni.
30. desember 1953 var samvinnu-
félaginu breytt í hlutafélag.
Stjórn þess var þannig skipuð:
Hús Nýju Bílstöðvarinnar í Hafnarfirði að Vesturgötu 1.
Margar og miklar breytingar hafa
orðið í þjóðlífi íslendinga á þess-
ari öld. Margt af því, sem þykir
sjálfsagður hlutur í dag og jafn-
vel ómissandi, þótti með öllu ójjarf-
ur og broslegur fyrir tveim til
þrem áratugum. Svo var t. d. um
leigubílana, þegar þeir komu fyrst
til sögunnar. Það þótti ekki lítil
goðgá, að ætla sér að hætta að
vinna, eins og það var orðað, og
fara að stunda fólksflutninga á
eigin bíl og ætla að framfleyta sér
og sínum á því starfi eingöngu. Nú
er leigubíllinn hins vegar orðinn
ómissandi tæki í hverri borg og bæ.
Svona breytast tímarnir og menn-
irnir með.
Nýja Bílstöðin h. f. í Hafnar-
firði var upphaflega sett á stofn 21.
ágúst 1946. Þá stofnuðu nokkrir
bifreiðastjórar Bifreiðastjórafélag-
ið Neista. Nokkru síðar eða 13.
nóvember sama ár stoínuðu 18. bif-
reiðastjórar samvinnufélagið Nýja
Bílstöðin, og skipuðu fyrstu stjórn
þess eftirtaldir menn: Ólafur Vil-
hjálmsson formaður, Bergþór Al-
bertsson, gjaldkeri og framkvæmda-
stjóri og Hallgrímur Björnsson rit-
ari. í varastjórn voru kjörnir: Krist-
ján Jónsson og Stefán Þorleifsson.
Félagið hóf starfsemi sína hinn
16. dag nóvembermánaðar 1946
með að opna bifreiðastöð í elzta
húsi bæjarins, Brydehúsi, iiúsi
Bjarna Sívertsen að Vesturgötu 6.
Fyrsti afgreiðslumaður stöðvarinn-
ar var Garðar Benediktsson. Félag-
ið átti við ýmsa erfiðleika að stríða
í fyrstu. Einkum var fjárhagurinn
þröngur, en félagið hefur samt
starfað óslitið frá upphafi og ann-
azt fólksflutninga í Firðinum alla
tíð frá stofnun. Árið 1947 setti
félagið upp benzintank og nætur-
síma árið eftir, og var hann stað-
Atvinnufyrirtækin í bænum VII:
Nýja Bilstöðtn h.f.
settur þar, sem Nýja Bílstöðin
stendur nú. En vegna fjárhagsörð-
ugleika var nætursíminn lagður
niður árið 1953.
Fyrsta verkefni hins nýja félags
var að hefja byggingu stöðvarhúss
að Vesturgötu 1. Það hús byggði
Finnbogi Hallsson trésmíðameist-
ari. Þá voru settir upp benzintank-
ar og ýmislegt fleira var gert til
þess að auka og auðvelda þjónustu
við almenning og starfsfólk. Að-
Garðar Benediksson, form.
Bergþór Albertsson, gjaldkeri og
framkvæmdastjóri
og Hallgrímur Björnsson ritari.
Samvinnufélaginu var þó ekki
formlega slitið fyrr en 12. okt. 1954.
Nýja Bílstöðin setti strax upp
sölubúð, og hefur hún ávallt haft
á boðstólum blöð, öl og sælgæti,
tóbak og gosdrykki. Er hún opin
frá kl. 7.30 árdegis tli kl. 24.00 að
kvöldi, og eru það mikil þægindi
fyrir bæjarbúa.
Nýja Bílstöðin hefur kappkost-
að að vanda alla þjónustu sem bezt
við bæjarbúa. Þegar mikið er að
gera er stundum erfitt að sinna
óskum fólks um bín, en stjórn
Starfsfólk og eigendur Nýju Bílstöðvarinnar í Hafnarfirði 1962.
Fremsta röð siljandi t. f. v.: Sveinbjörn Enoksson, Bergþór Albertsson framkvæmdastjóri og gjaldkeri,
Ólafur Vilhjálmsson formaður, Ari Benjamínsson ritari og Björn Eiríksson á Sjónarhóli.
Önnur röð (drengirnir) t. f. v.: Sigurjón Kristjánsson, Vilhjálmur Ólafsson og Óskar Sigurðsson.
Þriðja röð t. f. v.: Kristján Jónsson, Bjarni Björnsson, Jón Gestsson, Hallgrímur Árnason, Garðar Bene-
diktsson, Þorvaldur Ásmundsson, Árni Helgason, Páll Ingimarsson og Sigvaldi Óli Ólafsson.
Fjórða röð t. f. v.: Halldór Jóhannesson, Magnús Kristinsson, Þórir Hafnfjörð Óskarsson, Björgvin Þórð-'
arsson, Kristinn Jónsson, Pétur Valdimarsson, Jón Tómasson og Ingvar Ingvarsson.
Á myndina vantar: Hallgrím Björnsson og Guðmund Þorgrímsson.