Fróði - 01.09.1911, Qupperneq 12

Fróði - 01.09.1911, Qupperneq 12
8 FRÓÐI í fyrstu heyröu þau ekki til hans fyrir hávaöa og hlátri þeirra sjálfra. “Hví stendurðu á höfði en fórnar fótum til himins. Jean?” hélt hann áfram. “Það er tæplega nægileg kurteisi í nærveru ungrar stúlku. Ertu orðinn að svínshvolpi, þar sem þú grefur upp jörðina með nefinu?” Alice snéri sér snarlega við og leit glaðlega til Pére Beret; en tillit það var blandið talsverðu af óháðum viljakrafti og ráðríki. “Dóttir mín! ertu að reyna, að hjálpa Jean til að komast upp tréð með fæturna í fararbroddi?” mælti prestur og stóð kyr fyrir utan viðargirðinguna. Hann studdi höndum á mjaðmir sér, og átti nóg með að dylja hlátur sinn að því, er fyrir augun hans hafði borið. Því þótt hann væri aldurhniginn, hafði hann gaman af gáska æsku- manna og gat jafnvel tekið þátt í slíkum fjörsprettum, ef svo bar undir. “Þér sjáið, hvað ég er að gera, virðulegi faðir”, sagði Alice. “Ég er að koma í veg fyrir, að þér verðið fyrir skaða, þér tap- ið, ef til vill, ekki allfáum kirsiberia skorpusteikum og epla- búdingum, ef ég lofa Jean að komast upp. Hann var að klifr- ast eftir ávöxtum, en ég kom í veg fyrir, að hann kæmi ránfýsi sinni í framkvæmd. Ég vona, að þér skiljið rétt hinn góða til- gang minn”. “Jæ-ja”, sagði presturinn og hristi grálokkaða höfuðið, “við verðum að tala við drenginn með gætni og skynsemd. Sleptu fótunum á honum, dóttir; ég skal ábyrgjast hann; er það ekki óhætt, Jean?” Alice lét kryplinginn lausan, hló gáskalega og fékk honum berjaklasann. Hann tók þegar að eta berin af græðgi mikilli, en talaði jafnóðum. “Ég vissi, að ég gæti náð þeim”, sagði hann borginmann- lega, “og nú hefi ég þau líka”. Hann hoppaði hringinn í kring um þau, og var all-líkur ógeðslegum apa. Pére Beret hallaði sér upp að girðingunni við hliðina á Alice. Hún var nálega jafn há honum.

x

Fróði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.