Fróði - 01.09.1911, Side 14

Fróði - 01.09.1911, Side 14
IO FRÓÐI. andlega ljótir, er hirða um aö lesa slíkt. Mér fellur vel aö lesa um hugrakkar hetjur, fagrar konur, hernaö og ástir’k Pére Beret leit undan og kom nokkuö hlálegur svipur á andlitiö hans; hann lygndi aftur augunum. “Og nú skal ég segja yöur nokkuö, virðulegi faöir”, mælti Alice eftir stundar þögn. “Þér skuluö ekki fá dettandi dropa af rauðvíni og ekki einn munnbita af skorpusteik fyr, en ég hefi fengiö bækurnar mínar aftur og má lesa það, sem mér fellur bezt í skap”. Hún stappaði fætinum með geitarskinns-skónum, af ákefö mikilli. Hinn viröulegi faðir hló dátt, tók ofan stráhattinn og strauk, eins og í leiðslu, skallann stóra. Hann leit á háu, sterklegu stúlkuna, er stóð frammi fyrir honum, og þeim mönnum, er þykjast geta lesið hugsanir manna út úr andliti þeirra, mundi hafa orðið allörðugt að ákveöa með vissu, hvort það var fremur óánægja en ánægja, er lýsti sér í andliti prests að þessu sinni. Þótt hiti sólarinnar væri allsterkur, eins og presturinh haföi sagt, og að hann þyrfti oft að fara hringferð um skallann stóra meö afarmiklum vasaklút, þá var nú að renna á gola nokkur og svört ský voru að renna upp á loftið bak við trén. “Jæ-ja”, sagöi prestur, og reyndi að dylja hlátur sinn og taka á sig alvörusvip: “Þú vilt fara þínu fram, barnið mitt, og —” “Nú skuluö þér fá vætt af skorpusteik og stórflóð af rauð- víni“, greip hún fram í fyrir honum og gekk um leið aö girðing- arhliöinu, er var bundið með tágum, og opnaði það. “Komið inn, gamli, góði faðir, áður en regnið skellur á, og sitjið hjá mér á veggsvölunum þangað til að styttir upp aftnr. Séra Beret virtist ekkert hafa á móti því, að fylgja henni, þótt hann reyndar segði eitthvað um annir, er á sér hvíldu. Alice rétti út hendina og dró hann inn í garðinn; læsti síð- an hliðinu, stakk armi sínum undir handlegg prestsins með nokkrum gáska og leit framan í veðurbitna, gamla andlitiö með barnslegri gleði og ást. Ljósmyndavélar voru ekki uppfundnar, er saga þessi gerðist;

x

Fróði

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.