Fróði - 01.09.1911, Page 19

Fróði - 01.09.1911, Page 19
FRÓÐI. 15 konung friöarins óaflátanlega fyrir þér og hina heilögu jómfrú, aö þeim takist að leiða þig í náSarskaut kirkjunnar”. Hann hélt af staB; en er hann var aö eins kominn aS garös- hliðinu, hrópaði Alice á eftir honum: “Ó, kæri faöir! ég steingleymdi að sýna yður nokkuð skrítið”. Hún hljóp til hans og sagöi lágt: “Þér vitiö að húsfrú Roussillon hefir falið allar skáldsög- ur fyrir mér”. Hún var að leita að einhverju í barmi sínum. “Viljið þér snöggvust líta á'þessa bók?“ Hún sýndi honum litla bók í leðurbandi og var kjölurinn allslitinn. Nafn bókar þessarar var “Manon Lescau t”, skáld- sagan voðalega, eftir höfundinn fræga, Abbé Prevost. Pére Beret hleypti brúnum, hristi höfuöið og hélt á brott. Fn áður en hann komst heim til kofans síns hjá kirkjunni, var hann tekinn til að hlæja dátt, þótt hann reyndi.aö verjast hlátri. “Hún er skrambi smellin — býsna slungin stelpa”, sagði hann við sjálfan sig. “Þaö er að eins æskan og sjálfstæðisfýsn- in, sem eru að taka dálítið gönuskeið. Sálin hennar er bæöi góS og hrein”. II. KAPITULI. Bréf langt að komið. Þótt séra Beret væri um mörg ár trúboði í Wabashdalnum — lengstan tímann í Vincennes —, þá er þaS ekkert undarlegra að hans er hvergi getið í annálum, fremur en svo margra merkra annara atburða, er sögu bæjarins snerta, en sem annálar alveg ganga frain hjá. Eins og flestir embættisbræöur hans á þeim dögum, var hann óeigingiörn og prúS hetja, er virtist ekkert um það vita, að hann var mikilmenni, er verðskuldaði eftirtekt og virðing. Hann og séra Gibault, er kom svo göfuglega fram í sambandi við stórveiki Georgs Rogers Clarks, sveitarforingja, voru aldavinir. AS líkindum heföi séra Gibaults sjálfs, er nú er talinn frægur í sögunni, ekki verið fremur getiö, en séra Berets

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.