Fróði - 01.09.1911, Page 28

Fróði - 01.09.1911, Page 28
24 FRÓÐI O. Hara hristi höfuðið. “'Ég má ekki missa þig af skrif- stofunni Kit, og svo er langa sagan óskrifuð, sem kemur í hverju hefti. Ég hitti líka hann Jackson fyrir tæpri stundu. Hann leggur af stað til Klondike á morgun, og hann hefir lofað því, að senda mér bréf og myndir á hverri viku. Fg slepti honum ekki fyrri, en hann lofaði mér því. Og það sem bezt er af öllu er það, að það kostar okkur ekkert. Næst heyrði Kit um Klondike þegar hann kom á klúbbinn um kvöldið, og hitti föðurbróður sinn. “Sæll og blessaður, frændi góður”, mælti' Ivit. “Viltu ekki fá þér glas með mér”. Hann bað svo um kocktail fyrir sjálfan sig, en frændi hans vildi ekki annað en eitt glas af rauðavíni. Hann var ekki vanur að drekka neina áfenga drykki. Sá Kit það, að Karl gaut til sín óhýrum angum, og bjóst nú við fyrirlestri frá þeim aldna. “Ég má ekki vera hér nema augnablik’’, segir svo Kit. “Ég þarf að fara á Keith sýninguna og skrifa um hana hálf- an dálk”. “Hvað gengur að þér, drengur?” segir karl þá, “þú ert fölur sem nár, ég held þú sért að fara með þig”. Kit stundi við. Eg fer að hugsa að ég fái bráðum að standa yfir mold- um þínum”. Kit hristi höfuðið með sorgfullum svip og mælti: “Ekki vil ég láta maðka eta upp skrokkinn á mér. Heldur vildi ég láta brenna mig”. Jón gamli Bellew var einn af hörkumönnum þeim, sem höfðu lagt út á slétturnar miklu með uxa fyrir vögnum á ár- unum 1849 og 50, og yngri árum sínum hafði hann varið sem frumbyggi, að berjast við náttúruna. Honum var því meinilla við kveiíarskap allan. “Þú lifir eitthvað óreglulega, Kristófer. Ég skammast mín fyrir þig”. “Leiðir mínar eru blómum stráðar”. Gamli maðurinn svaraði með því að ypta öxlum.

x

Fróði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.