Fróði - 01.09.1911, Síða 34

Fróði - 01.09.1911, Síða 34
30 FRÓÐI. “Sástu manninn meö stúlkunni?” spuröi þá maöur við hlið hans eins og æstur væri. “Veiztu hver það er?” Kit hristi höfuðið. “Það er hann Cariboo Charley. Það benti mér maður á hann. Hann varð ríkur í Klondike. Hann var einn af þeim fyrstu. Hann er búinn að vera í Yukon ein 12 ár. Hann er á leiðinni þangað núna”. “Hvað þýðir Chekako?” spurði Kit. “Þú ert einn og ég er annar”. “En hvað þýðir það?”. “Það þýðir græningi”. Á leiðinni ofan í fjöruna fór Kit að velta þessu fyrir sér. Honum sveið það, að fallega stúlkan skyldi kalla sig þessu nafni. Fór nú Kit í skot eitt milli farangurshauganna og fór að vita hvað hann væri sterkur. Hann réðist á mélsekk, sem hann vissi að væri hundrað pund. Hann steig klofvega yfir sekkinn og reyndi að lyfta honum á öxlina á sér. Varð hann þess þá fljótt vísari að hnndrað pund eru nokkuð þung og svo hitt, að hrygg- urinn á honum var nokkuð linur, og þegar hann var búinn að bisa við sekkinn í einar fimm mínútur, þá hneig hann loks niður á sekkinn tautandi blótsyrði fyrir munni sér. Hann strauk svit- ann af enni sér, en er hann leit upp, sá hann Jón frænda sinn horfa á sig með háðslegu kuldaglotti. “Guð minn góður”, hrópaði Jón. “út af vorum lendum hafa komið aumingjar og vesalmenni. Þegar ég var 16 ára gat ég leikið mér að þessu”. “Þú gleymir því, frændi”, svaraði Kit, “að ég var ekki al- inn upp á bjarnarslátri”. “Og ég get leikið mér að þessu þegar ég verð 60”. “Það er bezt þú sýnir mér það”. Þetta geröi Jón og var hann þá 48 ára. Hann þreif tveim höndum í sekkinn og lyfti honum í einum rykk upp á heiðar sér og stóð keipréttur með hann. “Þetta er ekkert annað en Iag, drengur minn, og góður hryggúr”. Kit tók ofan hattinn í virðingarskyni. “Þú er hreystimað-

x

Fróði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.