Fróði - 01.09.1911, Qupperneq 42

Fróði - 01.09.1911, Qupperneq 42
38 FRÓÐI. Tilfinningar mínar stjórnast vanalega af höföinu en ekki hjartanu”. Nú korn henni til hugar saga, sem hún haföi heyrt viö te- boröiö. Hún hélt enn í hendina á honum. “Ætlaröu þá aö láta saklausa stúlku gjalda fyrir brot hvat- vísrar konu?” Hann horföi beint í augu henni. “Nei, ég elskaði hana aldrei. Ef ég heföi elskað hana, þá hefði ég veriö fullur sorgar og saknað hennar. I stað þess var ég niðurbrotinn af brigðlyndi hennar”. Þau þögnuðu. Hann horfði aftur í tímann, en hún fram til hins ókomna tíma. Hann tór þá aö hlæja, hallaði sér að henni og mælti: “Helena! Ég sé, að þetta er undarlegt bónorð, og ég hefði ekki getað verið eins hreinskilinn við nokkra aðra konu. Ég hefði að líkindum farið meö eintóm ósannindi. Ég hefði svarið henni ást, sem engin var. En ég get ekki borið fram fyrir þig ósannindi — af því að þú sérö og veist allar mínar hugsanir. Þú skilur mig. Ég hefi heyrt raddir manna titra, er þeir töluöu um hina einu konu, sem þeir elskuðu, og ég hefi öfundað þá. Ég hefi tekið vel éftir m’önnum og verið óviss um það, hvort þessi yfirgnæfandi ástríða, ástin, sé mönnunum blessun eða bölv- un. En hvað sem hún svo er, þá hefir mér ekki verið gefin hún. — Helena! ertu nógu hugrökk til þess að giftast manni, sem er sannfæröur um að hann geti aldrei elskað?“ “Þú hefir ekki spurt mig — hvort ég — elski þig?” Nú var sem hann breyttist allur. “Ég vildi óska þess, kæra stúlka, aö þú — elskaðir mig ögn — minna”. Nú brá fyrir viökvæmu brosi um varir hennar og voru þær orðnar rauðar sem fyrri. “Ég skal giftast þér”. Hún sagði þetta alvarlega, en þó með nokkurri gleði. En þegar Adams reis upp að kveðja hana og tók hana í íang sér, að kyssa hana, þá fann hún, að hann gerði það af því einungis, að honum fanst það tilhlýðilegt.

x

Fróði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.