Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1972, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.03.1972, Blaðsíða 4
búa einmitt á svæði, þar sem górillaaparnir halda sig, hefur ekki meira en þriðjungur þeirra, séð górillu bregða fyrir. Franskur veiðimaður, Compiégne greifi, sem dvaldi um langt skeið í Mið-Afríu, meðal annars til þess að veiða górilluapa, tókst að- eins einu sinni að koma auga á górillaapa, og þá úr nokkurri fjarlægð. Vísindamaður, sem dvaldi um tíma í héraði, þar sem gór- illaapar höfðust við, lofaði verðlaunum, sem samsvöruðu 800 krónum og var stórfé á mælikvarða negranna, hverjum þeim er gæti fært honum górillaskinn. Þetta bar engan árangur, því þrátt fyrir geysilega fyr- irhöfn tókst engum að vinna til verðlaun- anna. Á síðari árum hefur þekking okkar á þess- ari merkilegu apategmid stóraukizt, og er það einkum að þakka miklum rannsóknar- leiðangrum, sem farnir hafa verið um hin óþekktu landsvæði Mið-Afríku, til þess að ijósmynda og kvikmynda. Jafnvel þótt górillaapinn sé sjaldséður, var hann þekktur þegar í fornöld af íbúum Mið- jarðarhafslandanna. Áhöfnin á fönisku skipi, sem nokkur hmidruð árum fyrir Krist sigldi til vesturstrandar Afríku, sagði frá því, þeg- ar hún kom heim, að þeir hefðu séð risa- vaxna negra, sem hefðu verið loðnir um næst- um allan líkamaun og til sönnunar sögu sinni sýndu þeir skinn af einum slíkum risanegra. Þetta skinn var síðan varðveitt í Róm og 48 HEIMIIjISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.