Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1972, Blaðsíða 20

Heimilisblaðið - 01.03.1972, Blaðsíða 20
ræður yfir skóginum og hafinu og himnin- um, hefur ekki viljað að ég ofmetnaðist af konungdómi mínum og mínu langa lífi. Þess vegna lætur hann mig taka á mig gervi lít- ils bláberjaorms hundraðasta livert ár. I þessu veika og hlífðarlausa gervi verð ég að vera heilan dag frá sólarupprás til sólar- lags. Þá er ég ofurseldur öllum þeim hætt- um, sem slík smádýr eru undirorpin: fugl getur hrifsað mig í gogginn, barnið getur tínt mig á betri og troðið mig undir fótum sér, svo að ég missi lífið. Dagurinn í gær var einmitt hamskiptadagur minn. Eg var tekinn með bláberi og átt.i á hættu að verða troðhm í sundur, liefðuð þið ekki bjargað mér, blessuð góðu börnin. Til sólarlags lá ég ósjálfbjarga í grasinu. Þegar mér var blásið af borðinu, þá snerist undir mér fót- urinn og skekktist á mér munnurinn af ótta. En þegar kvöld var komið og ég tók aftur mitt eigið gervi, þá fór ég að litast um eftir ykkur til þess að launa ykkur svo vel sem ég gat án þess að hræða vkkur. En nú ætla ég að lána ykkur fugl til að vísa veginn. Verið þið sæl, börnin góð. Iíafið þökk fyrir brjóstgæðin. Bláberjakonungurinn mun svna ykkur að hann er ekki vanþakldátur.1 £ Telpurnar réttu karlinum höndina og þökkuðu fyrir sig. Þær voru því alls hugar fegnar, að þær höfðu hlíft bláberjaorminum daginn áður. Nú ætluðu þær að fara á stað, en þá sneri sá gamli sér við og lék hæðnis- bros um hans skakka munn: „Skilið kveðju minni til hans Björns litla,“ sagði hann, „og segið honum, að þegar við hittumst næst, mun i ég éta hann upp til agna.“ „Æ, það máttu ekki gera, herra bláberja- ormur,“ sögðu báðar telpurnar óttaslegnar. „Jæja, ég skal fyrirgefa honum ykkar vegna,“ sagði karlinn. „Eg er ekki hefni- gjarn. En skilið þið kveðju til Björs litla og segið honum að hann eigi líka von á gjöf. Verið þið sælar.“ Þær tóku nú ber sín og hlupu inn í skóg- inn á eftir fuglinum og var þeim nú létt í geði. Innan skamms tók skógurinn að gisna og þær furðuðu sig á, hvað þær höfðu get- að farið krókótt daginn áður. Þar urðu heldur fagnaðarfundir, þegar þær komu heim. Allir höfðu beðið eftir þeim og leitað að þeim. Fullorðnu systurinni hafði ekki komið dúr á auga. II ún hélt að varg- ar liefðu grandað litlu systrunum. Björn litli kom á móti þeim með lcörfu og kallaði: „Ivomið þið og sjáið þið. Hér er sending til ykkar. .Gamall maður kom með það til ykkar rétt áðan.“ Þær opnuðu nú körfuna. Þar lágu tvö dásamleg armbönd með lieiðbláum gimstehi- um, sem voru eins og þroskuð bláber í lög- un. Þar á var ritað: „Drep þú ekki varn- arlausa, Björn litli.“ Björn skammaðist sín. ITann skyldi sneiðina, en hann sá að sá gamli hafði hefnt sín með þeim hætti, sem góð- um mönnum er títt. En bláberjakóngurinn hafði líka hugsað fyrir fullorðnu systurinni. Þegar hún fór að bera miðdegismatinn á borð, þá stóðu þar tólf körfur fullar af skínandi fallegum bláberjum. Nú var ærinn starfi fyrir liendi að svkra þau og koma þeim fyrir til geymslu. Við getum farið þangað til að hjálpa, ef þú vilt. Við fáum þá sjálfsagt berjabragð. Því að þau hafa víst eigi lokið starfinu enn. Þetta var ekkert smáræði. Zacharias Topelms. Einu sinni var vel klæddur Jóti á gangi, en af því að hann hafði fengið sér heldur mikið „neðan í því“, lagði hann sig fyrir og sofnaði. Meðan Jótinn svaf, bar þar að annan ferðamann. Ilann sá, að Jótinn var í nýjUm og fallegum sokkum, og með því að hans sokkar voru orðnir gamlir og gat- slitnir, notaði hann sér tækifærið, hafði sokkaskipti við Jótann og hélt svo áfram leiðar sinnar. Þegar Jótinn liafði sofið úr sér vímuna, kemur að honum maður akandi í vagni og kallar til hans að standa upp, eða hann aki yfir fæturnar á honum. Jót- inn leit á fætur sér, en er hann sá, að hann var koininn í gráa og karbætta boli í stað nýju sokkanna, verður hann hinn rólegasti, leggst útaf aftur og segir: „Aktu áfram, maður minn, ég á ekkert í þessum fótum.“ A: Nú verður þú að borga mér þessar 10 krónur, sem ég á hjá þér; peningar eru tvígildir í þessum hörðu árum. B: Já, það er satt! Hérna eru þá 5 kr. og svo er skuld minni eftir því lokið. 64 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.