Heimilisblaðið - 01.03.1972, Side 12
eigi að snúast eins og snælda kringum mann-
inn sinn, þegar hún er gift, og að minnsta
kosti á hún alls ekki að gera það, áður en
hún giftist honum.“
„En hvað á ég að gera?“
„Þú átt ekki að vera svona góð. Eða að
minnsta kosti áttu ekki að láta bera eins mik-
ið á því og þú gerir. Þú skalt klæðast há-
rauðum kjól, sem er fleginn langt niður á
bak, neita að stoppa í sokkana lians eða fara
sendiferðir fyrir hann. Reyndu að tæla að-
stoðarprestinn, því þá mun hann áreiðan-
lega taka eftir þér. Ef þú elskar hann, áttu
að hertaka hann, annars gera aðrar það.“
Miranda setti fram alls konar mótmæli,
en Polly stóð upp og vafði um sig teppinu.
,,Eg hef talað,“ svaraði liún og byrjaði að
ldæða sig, og það varð Miranda að láta sér
nægja.
Þegar Diek kom heim úr ferðalaginu, fór
Miranda aftur heim til Greyliurst.
Það var auðsjáanlega verið að leika tennis
í garðinum, þegar hún kom, því liún heyrði
hljóðið af höggunum og samtal. Iíún liorfði
yfir liópinn úr glugganum sínum. Þarna var
David Armstrong, aðstoðai-presturinn, herra
Meason, skóladúxinn Graham, stórvaxinn og
myndarlegur piltur, sem allur skólinn leit
upp til, ungfrii Jones, dóttir eðlisfræðikenn-
arans og foreldrar Miröndu.
Miranda leit í spegilinn. 'Hún var dálítið
föl, og var í hvítum, þunum sumarkjól. Hún
greip greiðu og greiddi gljáandi ljóst árið
frá enninu og vafði upp lokkana bak við
evrun. Síðan setti h ún í sig græna reyna-
hringi, og batt tvílitan klút, um háls sér og
litaði varirnar. Allt þetta gaf henni frísk-
legt og óvenjulegt útlit. Að þessu loknu fór
hún út á tennisvöllinn.
Þau voru að drekka te, þegar hún kom
þangað. Ilún gekk yfir völlinn og ungu
mennirnir þrír stóðu á fætur. Miranda þáði
stól aðstoðarprestsins, með elskulegu brosi.
„Iíeyrðu Miranda,“ sagði faðir hennar allt
í einu, milli tesopanna. „Yiltu ekki skila bók
fyrir herra Armstrong á bókasafnið, þegar
þú ferð í bæinn á morgun.“
Miranda leit alvarleg á David Armstrong.
Hann horfði einnig til hennar og að því er
virtist, í fyrsta skipti með sýnilegum áhuga.
„Það get ég alls ekki,“ svaraði hún ákveð-
in. „Það er svo ótal margt, sem ég þarf að
gera á morgun.“
Það varð dauðaþögn og það var eins og
allir forðuðust að horfa á Miröndu, nema
David, sem veitti henni nána athygli. Mpðir
liennar reyndi að beina athygli fólksins frá
þessu, með því að fara að tala um veðrið.
Þetta var uppliafið að baráttu Miröndu.
Durant-fjölskyldan áttaði sig ekki fyllilega
á því, hvort Miranda hefði misst vitglóruna
eða hvort það var ókunnug manneskja, sem
kom til baka frá Shorefield. Hún fékkst ekki
til að elda mat, fór og kom, þegar henni
þóknaðist, neitaði að stoppa í sokkana fyrir
David Armstrong og notaði tímann til að
sauma föt á sjálfa sig.
Ilún byrjaði að nota fegrunarmeðöl og
fór gjarnan út með aðstoðarprestinum. Einn
daginn kom sjálfur skóladýrlingurinn Gra-
ham og spurði hátíðlega um það, hvort hann
fengi leyfi til að fara á veglegan dansleik á
Grand Hótel og hvort Miranda vildi gera
sér þá ánægju að koma með sér. Þar sem
hann var 24 ára var Miröndu, dóttur skóla-
stjórans veitt leyfið.
David Armstrong fór einnig á dansleikinu
og bauð ungfrú Jones með sér. Hún var í
rósóttum taftkjól með knipplingakraga.
Miranda var í grænum Georgettekjól, sem
náði niður á ökkla, og var fleginn í bakið,
og daðraði opinskátt við alla þá herrá, sem
liún dansaði við og þeir voru margir. Henni
hafði aldrei komið til hugar, að hún gæti
orðið svona eftirsótt. En David hélt sig allt-
af í fjarlægð frá henni.
Eftir kvöldverðinn sá Miranda hann ganga
út í garðinn og laumaðist á eftir honum.
Hann leit við og sá hana standa við liliðina
á sér, í græna kjólnum, og ljósið frá dans-
salnum lék um gullið hár hennar.
„Hvers vegna hafið þér ekki beðið mig um
dans, herra Armstrong,“ spurði hún bros-
andi.
„Þér------ég-------þér verðið að afsaka,
gæti ég fengið þann næsta?“ Hann hneigði
sig lítillega. Miranda liorfði niður á tærnar
á skónum sínum og augu hennar glömpuðu
stríðnislega, næstum eins og í Polly. „Ég á
því miður ekki fleiri ólofaða dansa,“ svar-
aði hún.
„Það var leiðinlegt.“
Annað sagði hann ekki. Hún hefði verið
56
HEIMILISBLAÐIÐ