Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1925, Blaðsíða 5
IÐUNN
Elsta óðal á Islandi.
227
munu þau vera höfuðbólin í öðrum löndum, sem aldrei
hafa úr ætt gengið á svo löngum tíma. Þetta er þeim
mun merhilegra, að átthagatrygð og rækt við forn ættar-
óðul virðist annars ekki hafa verið mjög rík hjá oss
Islendingum. Því til sönnunar má benda á það, að óðals-
rétturinn, er frændur vorir Norðmenn mátu svo mikils,
festi aldrei rætur hér á landi að marki. Og það er
Ijóst t. d. af íslenskum ættartölubókum, að ættir hafa
dreifst ótrúlega um landið og að furðulega miklir mann-
flutningar hafa verið innanlands þrátt fyrir strjálb.ygð
og vegaleysi.
Þessi jörð er Skarð á Skarðsströnd.
Vegna þess hve einstakt þetta dæmi er og merkilegt
skal saga Skarðs rakin hér stuttlega alt fram á vora
daga. Er það auðskilið að rúmsins vegna verður að
fara fljótt yfir sögu.
Skarð hefir öll einkenni íslensks höfuðbóls. Þegar
komið er fyrir Klofning og beygt inn hlíðarnar hjá Mel-
urn og Ballará blasir Skarð við. Er bæjarstæðið staðar-
legt, á hjalla undir lágu felli, en fyrir neðan hjallann er
sléttlendi til sjávar. Heima er útsýnið eitthvert hið feg-
ursta í þeim sveitum. Blasir allur Breiðifjörður við með
öllum eyjagrúanum og yst Snæfellsjökull og Skor hvort
til sinnar handar.* Sjálf er jörðin einhver mesta jörð á
Iandinu, mun hafa verið talin þriðja haesta jörð að
hundraðatali í jarðabókinni frá 1861. Heimalandið er
mikið og gott og eyjalöndin víðlend og gagnsöm. En
eins og margar aðrar slíkar jarðir niun Skarð vera
fólksfrekt og örðugt ef nota á öll hlunnindin til fulls.
Saga Skarðs hefst með Geirmundi heljarskinn. Land-
náma segir að hann hafi fyrsfur numið land milli Fá-
beinsár og Klofasteina og búið á Geirmundarstöðum
undir Skarði. Geirmundarstaðir eru nú hjáleiga frá Skarði,