Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 41

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 41
IÐUNN Gróður jarðar 283 borði lífsins. En perlurnar í djúpinu fá að liggja óhreyfð- ar. Fyrsta skilyrðið til að geta áttað sig og hafist handa, er að komast út úr öldurótinu. Við munum eftir að Isak kom neðan úr byggðinni og hélt upp til fjalla. Þarna er líking falin. Hann er ein- mitt að flýja öldurótið, leita lífsins í einveru og næði og þrotlausu, einbeittu starfi. Við höfum séð að nokkru leyti hvernig honum tókst það. Hann er ekki aðeins orðinn auðugur óðalsbóndi og fullkominn höfðingi, held- ur hefir hann einnig bjargað því, sem mest er um vert, bjargað hinu besta í cíðli sínu frá glötun, inn á land friðsælu og fullnægiu. Hann hefir leitað hamingjunnar og fundið. Hann hefir leitað hennar með höndina á plógnum, en ekki með teninginn í hendinni. Hann hefir gengið vaxtarmegin í lífinu, en aldrei heimtað hlut sinn án endurgjalds. Hann hefir gefið krafta sína, jörðin ávexti sína. »Maður og náttúra veita hvort öðru fullkom- in réttindi*, segir á einum stað. Hér er ekki hið mikla boðorð brotið: Starfaðu í samræmi við lífið og upp- skeran mun ekki bregðast. Öllu því, sem heldur sig á hinum frjóvu og Hfrænu sviðum tilverunnar og brýtur ekki í bága við lífslögin, er borgið. Að því hlúir nátt- úran sjálf og leggur það að hjarta sér, ekki síður en hún eyðir hinu, sem veður á bæxlunum utan við lög og rétt. »Maður, endurborinn frá fortíðinni, sem vísar framtíð- inni leið«. Hér er einmitt verið að vísa framtíðinni leið, burt frá hergöngunni gegn lífinu. Mannkynið á að ganga óglögga, langa götuslóðann »yfir mýrarnar og inn í skóg- ana«. Það er leiðin til hinnar margþráðu hamingju. I óbrotnu, veitandi starfi landnemans, sem ræktar hlífðar- laust land og lund, finnur mannkynið sjálft sig. Sálin druknar þar ekki í flaumi yfirborðsmensku, heldur þrosk-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.