Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Blaðsíða 77
IÐUNN
Ritsjá.
319
og örlög manna. Þær eru læsilegar, sumstaðar prýðilega skrifaðar.
En það vantar í þær þann heilaga eld, sem skapar mikla list.
Undir niðri streymir þó all-þung ádeilu-alda. Og í síðari sög-
unni brýst hún fram, en þvi miður verður sagan um leið með dá-
litlum reyfarablæ.
Fyrri sagan: Æska og ástir er miklu listrænni en hin síðari.
Hvernig höfundurinn teflir þar fram stúdentinum (sem síðar kem-
ur fram og er þá orðinn læknir) minnir á sanna list og er jafn-
vel sönn list. Þar er lýst hinu eilífa unga, sem engin list getur
verið án. Þau einkenni höfundar gefa mér von um, að hann eigi
í sér enn þá ríkari skáldæð, en sögur þessar bera með sér.
Annars virðist sagan vera aðallega ádeila á „eina af meinsemd-
um hjónabandsins“ „Tendens“-skáld fórna stundum listinni á altari
tilgangsins. Og í þessari sögu gætir tilgangsins meira en listarinnar.
Síðari sagan heitir: Tvennir elskendur. Hún er einnig mjög
læsileg, en í henni veður tilgangurinn uppi. Sagan sýnir að vísu
örlög mannssálna, en aðallega er hún „innlegg" í þjóðfélagsmálin.
Þar takast á auðvaldsstefna og öreigastefna. Sá vaxandi áhugi með-
al présta (sbr. G. Benediktsson: Við þjóðveginn) á þjóðfélagsmál-
unum, sem sjá má af ýmsu nú á tímum, er gleðilegur. Sannfæring
mín er sú, að kirkjan standi og falli með því, hvernig hún tekur
afstöðu til þeirra mála. Og séra Stanley Melax hefir greitt þarna
Torfalögin, en listin hefir orðið að lúta í lægra haldi fyrir vikið.
— Karl Lárusson skýtur ekki Baldur Sveinsson af því að hann sé
blindur ofstækismaður, ekki af því að hann sé jafnaðarmaður en
hinn atvinnurekandi, eins og sagan gefur óneitanlega í skyn. Hann
gerir það af því, að hann er óstjórnlegur skapmaður, sem hefir
mist hið dýrmætasta er hann átti, hreinleik unnustu sinnar. — Þegar
eldur ástríðnanna logar, hverfa mismunandi skoðanir á stjórnmálum !
Báðar sögurnar segja frá skipbrotsmönnum. Lífið er miskunn-
arlaust og kremur hóglátlega og kurteislega þá, sem brjóta lög-
mál þess. En í sögulokin hvorutveggju roðar fyrir komandi degi.
Uppeldi ungu kynslóðarinnar á að miða að því, að ala upp hrausta
tápmikla og sanna menn.
Einar Þorkelsson: Ferfæflingar.
„Milli manns og hests og hunds hangir Ieyniþráður“, — kvað
Matthías. Prýðilega hefir verið lagt út af þeim texta í þessum
dýrasögum.