Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Page 44

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Page 44
286 Eiríkur Magnússon IÐUNN markað. Þetta er óviðjafnanlegt. Hlustaðu á mig, Sivert! Verið þið ánægð! Þið hafið alt til að lifa af, alt til að lifa fyrir, alt til að trúa á. Þið fæðist og framleiðið, þið eruð nytsöm á jörðinni. Það eru ekki allir, en þið eruð það; þið berið lífi uppi. Frá kynslóð til kynslóðar hafið þið varið lífinu til þess eins, að yrkja. Þegar þið deyið> heldur yrkjunin áfram. Þetta er það, sem gjörvalt lífið stefnir að. En hvað hljótið þið að launum? Réttindi og völd. Líf í samræmi og einlægri aðstöðu til alls. Hvað hljótið þið enn að launum? Ekkert ónáðar ykkur eða undirokar á Sellanraa. Þið lifið i friðsælu og sjálfs-ör- yggi. Hin djúpa vinsemd vefur ykkur örmum. Þið hvílið við móðurbrjóst og leikið að hlýrri móðurhönd«. Vrkjandi líf í eining með víðfeðmu lífi náttúrunnar er takmarkið. Þar er fylling lífsins. Fyrsta gleðin á jörðu hér var sköpunargleðin. Hún er og æðsta gleðin. Sig. Guðmundssyni skólameistara farast þannig orð um yrkjunina: >Vrk þú, segir reynsla vor, miklir spek- ingar, gjörvalt eðli vort, andlegt og líkamlegt. Vrk þú, býður þjóðfélag og ríki. Fara hér dásamlega saman þroska- og gjafaþörf sjálfra vor og þarfir bágstadds mannfélags, er einkis þarfnast meir en yrkjandi afla. Vrk þú, er boðorð náttúrunnar, sem sjálf yrkir endalaust undur og æfintýr lífs og heljar, smæðstu smæðir og sólnanna sólir«. Vrkjunin er boðorð lífsins, lífsins í okkar eigin barmi og lífsins í náttúrunni. Að yrkja er að vera í samvinnu við lífið, verða því samferða. Þeir sem yrkja eru »nyt- samir á jörðinni*, eins og Hamsun kemst að orði. Þeir lifa lífinu í einlægri aðstöðu til alls, þeir hvíla við móð- urbrjóstið. Af yrkjandi orku á þjóðfélag framtíðarinnar að rísa. Isak er hinn yrkjandi maður, og þeir sem feta

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.