Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 47

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 47
IÐUNN Gróður jarðar. 289 hvíldin að afloknu sköpunarverki — starfshvíldin. Hún er og æðsta hvíldin. Flestir kannast við söguna af Fiðurhólmunum. Það voru einkennilegir hólmar. Aldrei var auðið að finna þá í ys og hávaða dagsins, því »þegar haninn galar, síga þeir í allri sinni dýrð niður í hafið. En á hverju kveldi, þegar skuggarnir lengjast og stjörnurnar tindra á himninum, rísa þessir leyndardómar hafsins aftur úr skauti þess«. Það var undur fagurt og unaðssælt á Fið- urhólmunum, »þar blása engir stormar og öldurnar ókyrrast aldrei, og þar flögrar aldrei einmana már yfir brimlöðrinu. Ljúfur friður hvílir yfir öllu. Vindarnir hvíla og öldurnar sofa, fuglarnir syngja lágt og blítt, og tungls- ljósið, skínandi bjart eins og gull, leikur um blómin og trén, sem teiga döggina í kveldblænum*. Margir leita Fiðurhólmanna, þar er svo gott að vera. En flestir finna þá aldrei. Þótt þeir eygi þá rétt í svip, kasta öldurnar fleyi þeirra til og frá, og fyr en varir hverfa þeir sjón- um þeirra djúpt, djúpt niður í hafið. Vegurinn til hólm- anna liggur aðeins eftir þremur leiðum: »farvegur vinn- unnar, fjörður heilsunnar og höfn góðrar samvisku«. Eftir öðrum leiðum en þessum verða þeir aldrei fundnir; því sigla svo margir fram hjá þeim út á regin, regin haf. Mannkynið er auðugt; það dreymir og sér sýnir. Oft eru það »fata morgana« aðeins, en það á sér þó sælu- land, sem ekki er tómar hillingar. Ut við hafsbrún draum- sjónanna eru Fiðurhólmarnir. Þar liggja þeir í sólgliti og ládeyðu og þangað stefna mennirnir bátum sínum. En hafvillurnar og slysfarirnar eru tíðar. Margir sigla að vísu um farveg vinnunnar og um fjörð heilsunnar — þeir, sem það er gefið. En þeir farast oft í lendingunni. Innsiglingin inn í höfn góðrar samvisku er þröng, þar

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.