Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 67

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 67
IÐUNN Rauða rúmið. 309 vana^sínum. Hann hafði ekkert minst á það, að við myndum sjást aptur, sem hann þó altaf gjörði. Ég sneri við, og gekk inn aptur. »Þér mintust ekkert á það þegar ég var að fara, að við myndum sjást aptur, eins og þér þó eruð vanur«, sagði ég. »Þér tókuð eptir því«, sagði hann og hló, en það var eins og mér heyrðist hláturinn vera í öðru herbergi. »En ég skal segja yður, að það er svona með tilviljuna, sem eins og ég hefi margsagt yður ekkert er nema við sjálfir, að hún veit ekki altaf fyrirfram hvar hún ætlar okkur næturstað«. Með það fór ég. — — — — — — — — — — — — Ég kom næsta dag eldsnemma til Eyvindar. Ég var í miklum önnum þá dagana vegna kvefsins, svo ég fór snemma ofan, og ég held að ég hafi komið til Eyvind- ar milli klukkan 8 og 9. Ég gekk inn í svefnherbergið og þar lá Eyvindur steinsofandi og hreyfingarlaus á hægri hliðinni. Ég fór að bollaleggja hvort ég ætti ekki að lofa honum að sofa, og koma heldur aptur seinna, en gekk þó að rúminu. Það var eins og orðin, sem hann hafði til mín talað daginn áður, en þó miklu frekar það, sem hann hafði látið ósagt, ræki mig þangað. Ég heyrði að Eyvindur dró ekki andann. Ég bylti honum til, hann var stirður. Ég dró upp hlustarpípuna og hlustaði hann. — Eyvindur gamli jónsson var dáinn. Það lagði einkennilega angan frá vitum hins dauða manns upp til mín. Ég kannaðist við hana. Grímur prófessor hafði lofað Eyvindi gamla að skreppa síðasta spölinn með hraðlestinni, eins og hann hafði óskað. Ég lagði gamla manninn til, og breiddi yfir hann. 20

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.