Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 70

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 70
312 Guðbrandur Jónsson: IÐUNN bylti mér til undir kné sigurvegarans. En þú spyrð apt- ur því mér hafi ekki dottið þetta í hug fyr. Eg skal koma að því. Ég elskaði þig þá. Ég greip hvert færi á að koma mér við. Og hvað var eðlilegra en að ég elsk- aði tækifærin til þess. Þú varst eitt af þeim, — hið ein- asta, sem mér nýttist að, og gat nýzt að, og því elskaði ég þig. En ég vissi þá ekki að þú varst einasta tæki- færið. Ég hélt að mér væru allir vegir færir alveg fram á þennan dag, og ég hélt að ég væri altaf að því kom- inn að koma mér við, — það var meinið. Svo fluttum við saman, við giptumst ekki. Það var ég, sem réði því eins og öðru, mér fanst það vera svo odd- borgaralegt, og mér fanst ríki og kirkju ekkert varða um þau mál mín. Ég skyldi ekki að ég var lítið hjól í stóru sigurverki, og fyrir bragðið varð núningsmótstaðan frá minni hendi of mikil. Égvildi vera vísir klukkunnar og fara mína leið, ekki eins og verkið drægi mig, heldur vildi ég láta verkið elta mig. Ef til vill hefði farið vel á því, ef til vill ekki. En tilviljunin — ég sjálfur — gat ekki komið því fram. Manst þú þegar ég lét búa til húsgögn- in okkar? Þau voru hvorki mikil né merkileg, en ég hafði sagt fyrir um gerð þeirra allra, og bæði mér og þér féllu þau í geð. Manstu eftir rúminu okkar — stóra rauða rúminu? Það var sterkt, og hreinlegar í því lín- urnar. Ég hafði gert mér einna mest far um það. Það var eiginlega mynd af mér, eins og mér fanst ég vera eða eins og ég vildi vera. Manst þú eptir því? Við sváf- um í því þau ár, sem við vorum saman. Þú svafst í fanginu mínu, og mér fanst altaf falla á mig ró þegar ég lá þar við hliðina á þér. Mér finst nú eins og mig þar, og hvergi annarsstaðar, hafi langað til að vera það, sem ég er, og ekkert annað. Og það kemur einmitt svo einkennilega heim við það, sem nú er að gjörast í lífi

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.