Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Page 72

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Page 72
314 Guðbrandur Jónsscn: IÐUNN grein fyrir þvf en þá, að mér leið vel í því; mér leið eins og ég býzt við að trúlausir menn vilji láta sér líða eptir dauðann. Svo veiktist ég í vetur og prófessor Grím- ur vitjaði mín — þú manst eptir honum, hann var stú- dent þegar við vorum saman. Eg var með miklum þraut- um, og ég bað hann uppá gamlan kunningskap að segja mér hvað að mér gengi. Hann sagði að það væri krabbi, og að ég myndi ekki komast til heilsu aptur. Hann kom til mín á hverjum degi, og hann lét mig daglega fá eitthvað við kvölunum, svo að ég var mest af sofandi. Ég var altaf að biðja hann að hjálpa mér til að sofna svo að ég vaknaði ekki aptur, því mér leiddist að bíða eptir því, sem óumflýjanlegt var. En Grímur vékst undan. Og ég lá altaf í rúminu og beið. En þó mér væri biðin hvumleið, var hún mér ekki óbærileg, og mér fanst það vera rúminu að þakka. Svo var það einn daginn að ég var að fitla við rúmstokkinn, — ég gjöri það opt. Hann var brákaður og skemdur, og víða voru komnir stórir gúlar á málninguna. Og ég fór af fikti að flysja einn gúlinn af eins og barn, sem er að sprengja hitabólur á hurð, og mér varð litið í gatið, sem á máln- inguna kom, og ég sá að það var annar litur undir. Ég varð forvitinn, og ég víkkaði gatið, og ég sá að lit- urinn var rauður. Svo alt í einu opnuðust augu mín. Ég vissi nú hversvegna ég hafði keypt einmitt þetta rúm hjá skriflasalanum og ekki annað. Ég vissi nú líka hvernig á róseminni stendur, sem yfir mig færist þegar ég hvíli í því — því að það var — gamla rauða rúm- ið okkar. Þegar Grímur kom til mín daginn eptir sagði ég honum alla söguna og bað hann enn hjálpar, svo að ég þyrfti ekki að bíða þetta lengur. Grímur horfði lengi á mig þegjandi, og ég tók þá fyrst eptir því, að hann er

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.