Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 78

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1926, Side 78
320 Ritsjá. IDUNN Stíll höfundar er ramíslenskur og fágæta þróttmikill og svjp- mikill. Er ósvikin unun að lestri bókarinnar aöeins vegna stílsins, en þó rithátturinn eigi þessa tvímælalausu kosti, er höfuðgildi bók- arinnar samt fólgið í samúð höfundar með „ferfætlingunum" og næmum skilningi á sálarlffi þeirra. Til þess að segja ve! sögur, þarf sögumaður að eiga ást á efni og lotningu — eða fyrirlitningu — fyrir söguhetjunum. Astina og lotninguna vantar ekki. Hvorttveggja þetta á þessi sögumaður í ríkum mæli. Vandi er að benda á nokkra söguna sérstaklega, því að þær eru svo jafngóðar. En engin sagan hreif mig eins og „Gyrðir". Vfir þeirri sögu allri hvílir svo mikil „aristokratisk" göfgi, að hún hlýtur að verða minnisstæð. Bókina prýða ágætar myndir, dregnar af Ríkarði Jónssyni. Hafi höfundur þökk fyrir fágæta frásögn og skilning og samúð með málleysingjunum. Kaupfélag Eyfírðinga. 1886 1926 Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga hefir gefið út þetta minningarrit á 40 ára afmæli félagsins. Fól hún Jónasi Þorbergssyni ritstjóra að semja ritið. Kveðst hann hafa „leitast við að haga þannig verk- um, að um Ieið og ritið yrði óyggjandi, sannsöguleg heimild um uppruna, starfsemi og þróun Kaupfélags Eyfirðinga, fengist í því nokkurt yfirlit um viðskiftaástandið í landinu, áður en verslunar- samtök bænda hófust og um þróun þessarar félagsmálagreinar, alt frá fyrstu viðleilni til samtaka og fram á þennan dag“. Eigi verður annað séð en höfundur hafi Ieyst þetta verkefni vel af hendi. Minningarrit þetta er prýðilega skrifað, -— eins og Jón- asar var von og vísa, — skipulegt og glögt. Ekkert hefir heldur verið sparað til þess að ytri frágangur ritsins væri hinn glæsilegasti. Það hefir verið að sannast í þessi 40 ár á Kaupfélagi Eyfirðinga að „mjór er mikils vísir“. Það hefst sem umkomulítil félagstilraun, en þegar horft er um öxl eftir 40 ár má með fullum sanni segja, að starfsemi félagsins sé merkilegasti þáftur í sögu Eyfirðinga. Og Kaupfélag Eyfirðinga varpar Ijóma á samvinnufélagshreyfinguna í landinu öllu, bæði vegna þess fordæmis sem félagið hefir skapað með heilbrigðri félagshyggju og hugsjónatrygð, svo og vegna þess, að frá Kaupfélagi Eyfirðinga kom sá maður — og gekk í þjón- ustu samvinnufélagshreyfingarinnar í þágu landsins alls — er glæsi- legastur hefir verið á því sviði. Eivíkuv Albevtsson.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.