Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 6

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 6
316 Skáldsögur og ástir. iðunn freim. Freyr, sonur Njarðar, sezt í Hliðsikjálf og sér mey fagra í Jötunheimum. „Þar af fékk hann lvugsóttir mikl- •ar.“ Og vissulega er engin lotning í huga skáldsins, er hann lýsir ópolinmæði Freys: „Löng es nótt, langar ro tvær, hvé of þreyjak þríar; opt mér mánaðr minni þótti an sjá half hýnótt.“ En greinilegust er þó vantrúin á ástina í Hávamálum- Þar er henni alt til foráttu fundið, en einkis getiö, er talið verði henni til gildis. Ástin er nátengd hinum lítilmótlegustu tilhneigingum í mannlegu eðli — flátt- skap og vanstillingu. Nú er það bersýnilegt, að jieir menn, sem jiessar bókmentir sömdu, voru komnir langar leiðir frá frum- stæðum jijóðum um mannvit og dóm á gildi hlutanna. En jiess lengra sem haldið er aftur í forneskjuna, Jiví minna kennir jiess, að ástin sé metin á líkan hátt og vorir tímar hafa gert. Skáldskapur frum|)jóða, sem vitni ber um magnmikla j>rá og ríka drauma, fjallar ekki að jafnaði um ástir, heldur um bardaga, veiði og jarðar- gróður. Þessi efni spentu strengi mannlegs hugar I)á, svo að örin flaug langt og beint og hratt. Hin líffræði- lega afleiðing hjúskaparins — afkomendur til jress að halda við ættinni — skifti mieira máli en alt annað í sambúð manns og konu. Þessi árangur ástarinnar var henna eina réttlæting. Niú kann margur að líta svo á, að fyrst virðingin og sMlningurinn á ástinni hafi farið vaxandi samhliða við- gangi menningarinnar, |)á sé jiað ljós bending um gildi hennar. Á þeirri rökleiðslu er sá einn ljóður, að I>ótt virðingin sé lítil hjá frumþjóðum, en mikil hjá oss, þá er ekki hægt ])ar fyrir að segja, að virðingin hafi aukist samhlí&a menningunni. Forn-Grikkir voru eigi menn-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.