Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 11

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 11
IÐUNN Skáldsögur og ástir. 321’ Þessi barátta er vitaskuld ekki annað en rökrétt af- leiðing af hinni almennu trú á gildi ástarinnar. Og hún hefir borið furðulegan árangur. Dómur alnienn- ings um afbrigði frá fyrirsettum reglum í ástamálum er svo miklu mildari nú en áður tíökaðist, að naumast verður saman borið. En jafnframt þessu hefir og farið önnur gagnrýni á arfþegnum hugmyndu:m um þessi efnd, sem ekki er síður vert að gefa gaum. Það er gagnrýni á tvíveðrungnum, sem felst í saimruna [>ess, sem hér hefir verið kent við meinlætastefnu og ridd- aramensku. Eins og áður hefir verið bent á, þá hafa menn átt harla örðugt með að losa sig við hina fornu hugsun, að eitthvað ógöfugt og í ætt við synd væri falið í kynferðishvötum mannanna og hinu sterka aðdráttarafli, sem ikynin hafa hvort til annars. Hins vegar hafa rnenn, eins og margtekiö hefir verið fram, verið sterktrúaðir á göfgandi áhrif, sem ástin — aðgreind frá hinum líkam- legu hvötum — hefði á sálarlif rnanna. Þetta hefir verið svo augljóslega ófullnægjandi tvískinnungur, að gagnrýnin kynslóð hefir ekki fengið við þetta unað. Það eru ekki skáld og listamenn einir, sem að jafnaði eru viðkvæmari en aðrir menn fyrir hvers konar ósam- ræmi, er hafa látiö þetta til sin taka, heldur sálarfræð- ingarnir ekki siöur. Frægastar athuganir um þessi efni eru kendar við Freud, semi ekki eingöngu neitar því, að unt sé að aðgreina sálræn áhrif ástalífsins frá líkamr legum hvötum, heldur heldur því fram, að öil mannleg þrá og allur mannlegur metnaður standi i órjúfanlegu sambandi við kynferðishvatirnar. Svo djúptæk áhrif sem kenningar þessa manns og annara, sem i líkar áttir fara, hafa haft á hugsanalif' og einkum skáldskap ýmsra þjóða, þá verða þessar

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.