Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 17

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 17
IÐUNN Skáldsögur og ástir. 327 trúað á, heldur eru ]>eir vantrúaðir á þau. En á ekkert eru ]ieir eins vantrúaðir eins og verðmætið, sem mest hefir verið metið — ástir. Þeir lýsa ungu fólki úr mentaðra manna stétt, sem. reynir að fylla innihalds- laust og verðlaust líf sitt með leit í ástum að ein- hverju gildi, en undir niðri fyrirverður það sig fyriT' leitina, því að það hefir þegar mist trúna á, að ástin búi yfir nokkru djúpu, dularfullu verðmæti. Þeir hafa svift ástina klæðum og virðast hafa fundið beinagrind. undir klæðinu. Þessi uppgötvun, sem mennirnir hafa pózt gera um eina stórvægilegustu blekkingu mannsandans, hefir á- reiðanlega ekki verið þeim öllum þrautalaus. Og þær þrautir hafa vafalaust valdið miklu um það, hve bækur þeirra eru oft ófrýnilegar og ljótar. Þeir draga ekki upp bitrar, hráar, sóðalegar myndir af sambandi manns og konu af léttúð, heldur af því, að þeim finst þeir vera að bjarga sál sinni frá ömuriegu skrímsli ástar- blekkingarinnar. Eftir æfintýrasvaml hvítra manna í a.11- ar þessar aldir, þá taka stórgáfaðir, viðkvæmir, trú- lausir, ungir listamenn þeirra aftur í höndina á kirkju- feðrunum. Já, á kirkjufeðrunum. Meinlætastefnan forna er runnin frá mönnum, sem reyndu af öllum kröftum lífs og sálar að bjarga sál sinni og samtíðarmanna sinna úr feni menningar, sem var í upplausn. En þeir ráku sig á,, að hugur mannanna var af engum efnum eins fast reyrður eins og sífeldri umhugsun um töfra kynferðis- hvatanna. Þessi uppgötvun þeirra hleypti í þá þeirri. beiskju, er varð að ummælum, sem enginn myndi fást til þess að setja á prent á nútímamáli, sökum frábæri- lega óhrjálegs orðalags. Kynferðishvötin varð í þeirra augum ímynd hins illa afls.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.