Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Side 18

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Side 18
328 Skáldsögur og ástir. iðunn Auðsær skyldteiki er með þessu og siumum ungum, ágætum rithöfundum nútímans. Þeir eiga að vísu ekki trú kirkjufeðranna, þeir sjá ekki það Ijós fram undan, sem blikaði á hugarhimni hinna fornu snillinga, en þeir búa yfir sömu alvöru. Einn lærisveinn þessara manna er Halldór Kiljan Laxness. Og hafi tvær verulega óiíkar hugarstefnur nokkru sinni fundið málsvara á prenti á Islandi á sama ári, |)á er þaö í bókunium ,,Jómfrú Ragnheiður" og „Þú vínviður hreini“. Grundvöllur sögu Laxness er naturaJismá. Mannlífið er ein rnynd, nákomin mynd, viljavana, vitundarlausr- ar náttúrunnar. Laxness gæti sagt eins og Jeans, að lífið væri sjúkdómur í efninu. Þegar „gögur kletta- beltin risu upp úr snjóvgum hlíðum í alveg óendan- legu samúðarleysi við ]>að, sem lifir og deyr“, þá er það ekki vottur þess, að mannveran sé að einhverju leyti annars eðiis en þessi ytri fyrirbrigði náttúrunnar, heldur þvert á móti. Hvorugt verður frá öðru greint, því „þá kom það augnablik yfir hana, að hún skynjaði sem í sjónhendingu, hve nákominn svipur mannsins var svip landsins, hve algerlega æðaslög eins samsömuðust æðaslög- um annars, hættir annars háttum hins, svo að hún var ekki lengur megnug þess að greina eitt frá öðru, heldur rann himinn og jörð og sær, ásamt manninum, Steinþóri Steins- syni, í eina samstæða og ógnþrungna heild, þar sem lag- boðar örlaganna dvelja í línum klettanna, þakskeggjum tómthúsanna, gný sævarins og þenslu óveðurskýjanna, án þess nokkur annar heimur eigi þar atkvæði og íhlutunar- rétt.“ Svona komast ekki aðrir að orði en snildarhöfundar. Og þessu viðhorfi er haldið gegnum alt ritið með mikilli festu og samkvEemni. Öfl náttúrunnar eru ekki eingöngu blind og gersamllega samúðarlaus, heldiur eru

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.