Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 24
IÐUNN
Hugleiðingar um nýtt landnám.
Eftir Steingrím Matthíasson.
I.
Landið okkar er að mestu
ónumið enn og víða lagt í
eyði [iar, sem áður var bygð.
„Nú horfir landið og vænt-
ir manns.“ Það mænir eftir
duglegum, nýjum landnáms-
mönnum og kallar í þá að
koma.
Það vantar fólk í allar
sveitir, bæði bændur og búa-
lið. En stöðugt heldur áfram
útstreymið til sjávarpláss-
anna. Hér við bætist, að nú
fer sú tízka að færast í vöxt,
að hjón takmarka barneignir,
eins og nú er móðin.s erlendis. Ógiftar stúlkur vilja helzt
ekkert barn eiga, Otg er þeim vorkunn nokkur, en þær
giftu að eins eitt eða tvö. En með slíkri sparnaðar-
viðkomu er fyrirsjáanlegt, að óratíma þurfi til að upp-
fylla þetta land og gera sér það undirgefið, eins og
ritningin ætlast til.
Því þá ekki að bjóða erlendum bændum að flytja
hingað og setjast hér að? Því ekki bjóða þeim góð kjör,
svo að margir vilji koma og við getum valið úr böpn-
um eins og okkur bezt líkar?
Vinnufólk getum við vissulega fengið, og það úrvals-