Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Qupperneq 31
SÐUNN
Hugleiðingar um nýtt landnám.
341
til að gangast fyrir slíkri berleiðingu. En meiningin var
góð.
Þegar tímar liðu, urðu þaer framfarir í skipasmíði,
,að nýjar og stærri Nóa-arkir en nokkru sinni áður
hlupu af stokkunium, og þar við bættist, að ný lönd'-
stóðu til boða heilum þjóðum, þar sem var margfalt
betra að búa en á Jótlandsheiðum.
Þannig var komið sögunni, þegar hallærið á síðasta
fjórðungi síðustu aldar gekk yfir land vort og svarf að
þjóðinni. Þá komu vesturfara-agentarnir og buðu öllum,
sem flýja vildu hólmann, nógan farkost og ódýran og
vísa vist í nýju Gósenlandi. Og fólk fór vestur í þús-
undatali, og ef til vill hefðu allir farið, ef þá hefði geys-
■að önnur eins plága og MóðuharÖindin fyrrum. Því
hættan er sú, eins hvað snertir mannkindurnar eins og
sauðkindurnar, að öll hjörðin renni á eftir, þegar nokk-
ur hluti fénaðarins víkur út af veginum, jafnvel þó að
út í ófæru sé stefnt. Gera má þó ráð fyrir, að margur
iandinn hefðft reynt að leita heirn aftur í sína átthaga,
er árfierði batnaði á ný.
Á þieim 40—50 árum, sem síðan eru l.iðin, hafa enn
«orðið stórstígar fmmfarir í mannflutningum um höfin.
Á styrjaldartimunum síðustu gátu ensku stórskipafé-
lögin leikandi flutt milljóna-herlið heimsálfanna á milli
á að eins nokkrum mánuðum. Ef þeim hefði boðist það
happ gegn góðri horgun út í hönd, að flytja okkur
fslendinga af landi burt, hefði mátt flytja okkur alla í
20—30 skipa flota í einum rykk.
Og á næstu árunr verða sennilega flugtækin enn þá
notalegri til mannflutninga. Gætum við þá, ef mikið
lægi við, farið að líkt og rjúpan, sem sögð er hafa
yfirgefið landið, og haft vistaskifti til Grænlands, a. m.
k. í bili.