Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Qupperneq 36
346
örfá orð til andsvara.
IÐUNN
En báðar þær greinar ollu mér pó vonbrigða. Grein
Sívertaens var lélegri en ég átti von á. Ég hefi ritað
rækilegt svar gegn grein hians, en fékk það ekki birt í
Prestaféliagsritinu, en vonast til að greinin birtist í
öðru tímariti innan skamms. Vonbrigðin með Ragnar
urðu þó enn meiri, en grein hans varð mér gleðiefni
fyrir þá sök, að hún styrkti mi,g í þeirri trú, hve skoðun
mín myndi hafa við mikil rök að styðjast, hve erfitt
væri að hrekja hana og óhugsandi að draga heilsteypta
æfisögu Jesú út úr frásögnum guðspjallanna á grund-
veLli annara skoðana en þeirra, sem ég hefi haldið frani-
II.
„Niðurstaðan stenzt ekki,“ segir R. E. K. um bók mína-
En á niðurstöður bóikarinniar ræðst hann ekkert í gnein
sinni, en gerir smávægilegar athugasiemdir við tvö at-
riði, sem eru langt frá því að vera þungamiðja skoðana
minna. Við þær athugasemdir hans vil ég dveija örlitla
stund og sýna fram á, hve hæpnar þær eru.
Annað atriðið er skýring mín á þeim orðum Jesú, að
frá dögum Jóhannesiar skírara verði guðsríki fyrir of-
beldi og ofbeldismenn taki það meö valdi. Mín skýring
er á þessa leið: Jesús og Jóhannes eru samistarfsmenn
og eru að bgrjast fyrir framgangi guðsrikisins, sem
fyrir þeim er jarðneskt ríki, þar sem gætt er réttlætis
og réttar lítilmagnans, svo sem verið hafði í draumum
þjóðarinnar um hundruð ára. Þjóðin hafði vænzt, aö
það ríki kæmi með snöggri byltingu, en fyrir Jesu
vakti, að leiða hugsjón sína til valda í gegnum þróun
á ]iá leið, að fleiri og fleiri ynnust fyrir hania og fylktu'
sér undir merki hennar, svo sem hann skýrir í dæmi'
sögunni um sæðið, sem óx af isjálfu sér. Og flokksstofn-
un sína skoðaði hann sem vísi þessa ríkis og nefndi