Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Side 38

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Side 38
348 Orfá orð til andsvara. IÐUNN sögn á þá leið, a'ð þar sé Jesús að tilkynna fylgjendum sínum þá ákvörðun sína að fana með flokk sinn til Jerúsalem og knýja fram byltin.gu með ofbeldi. Ragnar segir, að framsetning mín sé á þá lund, að skýringin, sé alls ekki ósennileg, að öðru lieyti en því, að það verði fullkomin ráðgáta, hvernig það á að fara saman hjá lærisvemunum, að þeir lýsi yfir sannfæringu sinni um að Jesús sé Messías og noti sama tækifærið til þess að átelja hann fyrir það, sem þeir töldu aðalverkefni Messíasar. Svo virðist, sem hér hafi Ragnari alveg láðst að setja sig inn í skýringu mína á starfisháttum Jesú og látið sér algerlega sjást yfir það veigamesta í mínum skýr- ingum. Ég held þvi fram, og færi aö því skýr og veiga- mikil rök, að Jesús hafi skift um starfsháttu í lok sfarfs- skeiðs síns. Ég held því frami, að í byrjun starfstíma síns hafi hann starfað sem umbótaþrédiikari og lagt áherzlu á þaö að bæla niður þann byltingarhug og þá uþþreisnarólgu, sem svall í brjósti undirstétta þjóðar- innar. Hann leggur áherzlu á það, að guðsríkið eigi að þróast smátt og smátt, og á grundvelli þeirra hug- mynda hefir hann safnað um sig flokki sínum. Það er því ofurskiljanlegt, og liggur meira að segja i augum uppi, að það verður mótstaða meðal fylgjenda hans, þegar alt í einu er vikið frá þeim meginreglum, sent fram hefir verið haldið og starfað eftir frá byrjun. I>ví að þess ber að gæta, að þótt þjóðin hefði alt af við þvt búist, að Messías myndi með uppreisn steypa af stóli valdhöfunum, þá hlutu áhrif af kenningum Jesú að hafa mátt sín meira meðal þeirra manna, sem um hann höfðu safnast.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.