Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Qupperneq 39
IÐUNN
örfá orð til andsvara.
349
III.
En þvi mieiri ástæða er ti! að gera sér þesisa grein<
að i pessu atriði birtist sú veila í viðhorfi Jesú gegn
starfi sínu, sem þess verður valdandi, að líf hans fer í
hundana jafngreinilega og raun varð á. Hann byrjar á
þeiim starfsgrundvelli, sem allia daga hefir reynst óhæ.f-
ur til sigurs. Hann ætlar að gera byltinguna á þanni
hátt, að ala þjóðina upp til andstöðu gegn þeim hug-
myndum, sem valdhafar bygðu á réttinn til yfirdrottn-
unar sinnar. Hann ætlar að leiöa byltinguna í gegn með
friði, en gætir þess ekki, að með boðun hinna nýju
hugmynda er ríkjandi skipulagi og ríkjandi valdhöfum
sagt strið á hendur, og það er óhugsandi, að þeir, sem)
völdin hafa, láti grafa undan þeinr máttarstoðum, sem
völd þeirra hvília á í 'meÖvitund fjöldans. Sá, sem völd-
in hefir, hefir einnig völdin í uppeldismáliunum og af-
salar sér þeim ekki fyrri en í fulla hnefana.
En til þessarar friðsömu starfsaðferðar hefir Jesús
alið upp flokk sinn. Þegar hann svo alt í einu breytir
til, þá eru það flestar aðstæður, sem spá honium fullunii
ósigri. Skyndileg bylting verður trauðlega leidd til
sigurs með öðru móti en þvi, aö hún sé undirbúin með
margra ára starfi, og fyrir hendi sé flokkur manna,
sem þjálfaður hefir verið til ofbeldisaðgerða. Til bylt-
ingarinnar er ráðist í dauðans ofboði, þegar sýnilegt
er, að prédikunarleiöin á ofsóknir valdhafanna yfir
höfði sér og anniaðhvort er að hrökkva eða stökkva.
Hún er í andstöðu við fyrri starfsemi flokksins og í
andstöðu við Jrær siðgæðiskenningar, sem foringi
flokksins ól í brjósti sér og hafði innrætt fylgjendum
sínum. Þar var ])vi um svo rnarga veika ])ræði að
ræða, að annars mátti vart vænta en að einhverjir
þeirra brystu um það lyki. Það er alls ekkert, sem til