Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 51

Iðunn : nýr flokkur - 01.12.1931, Page 51
IÐUNN Hjón. 361 En ró frúarinn-ar raskaöist ekki. — „Svei!“ sagði hún enn kuldalegar en áður. Presturinn sagði ekkert. Hann horfði á konuna sína. Gremja, aðdáun og ástríður fóru svipbrigðum um and- lit hans. Hún lá enn í grasinu, undir daggarslœðunni, og horfði út í bláinn. Ástríöurnar yfirbuguðu prestinn. Skyndilega fleygði hann sér niður við hlið konu sinnar og slöngvaði handleggnum yfir um hana. Hún vatt sig úr faðmlögum hans og stóð á fætur. „Ætlar presturinn að bleyta fötin sín?“ Pað vottaði fyrir brosi á andliti hennar. Presturinn stundi og teygði úr sér. Honum var fróun aö því að finna kuJ.dann frá jörðinni á heitt hörund sitt. Hann velti sér lengra út í grasið, eins og hann ætlaði að bleyta sig sem rækilegast. Frúin horfði á hann um stund; það var viðbjóðuir í augnaráði hennar. Svo lagði hún af stað niður í þorpið. Heiðskír og björt nóttin vafði fjörÖinn pögninni. Það leit út fyrir sama veður næsta dag. Sigurðiir Helgason. löunn XV. 23

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.